Fréttir

true

Fyrri undankeppni Söngvakeppninnar á morgun

Fyrri undankeppni Söngvakeppninnar verður sýndi í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu annað kvöld klukkan 19:43. Þar verða flutt fimm lög af þeim tíu sem taka þátt í keppninni fyrir Íslands hönd, en fimm önnur lög munu keppa í seinni undankeppninni laugardaginn 5. mars. Tvö lög sem fá flest atkvæði í símakosningu hvort kvöld tryggja sér sæti…Lesa meira

true

Búið að opna veginn um Kjalarnes

Búið er að opna veginn um Kjalarnes en þar er enn mjög hvasst og hálkublettir. Björgunarsveitarmenn verða þar enn á póstum til öryggis. Vegurinn við Hafnarfjall er enn lokaður.Lesa meira

true

Rafmagnsleysi í Snæfellsbæ

Rafmagnstruflun er nú í gangi í landskerfi Rarik í Ólafsvík, Rifi og Hellisandi. „Verið er að skammta rafmagn og er verið að vinna í að byggja upp kerfið,“ segir í tilkynningu. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528-9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Mjög hvasst í uppsveitum Borgarfjarðar

Nú er mjög hvasst og ekkert ferðaveður í uppsveitum Borgarfjarðar og raunar um gjörvallan landshlutann. Allir helstu stofnbrautir eru lokaðar, svo sem vegurinn um Kjalarnes, Holtavörðuheiði og við Hafnarfjall. Um hádegisbil lenti rúta með sjö farþega þversum á Hálsasveitarvegi í Borgarfirði og er vegurinn lokaður af þeim sökum. Unnið er að björgun. Þá eru þakplötur…Lesa meira

true

Siguroddur og Eyja frá Hrísdal sigurvegarar í fjórgangi

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hófst í gær þegar keppt var í fjórgangi í Faxaborg, reiðhöllinni í Borgarnesi. Siguroddur Pétursson og Eyja frá Hrísdal sigruðu í A úrslitum í gærkvöldi og liðaplattinn fór til liðs Söðulsholt að þessu sinni. Úrslitin voru þessi: A – úrslit Siguroddur Pétursson og Eyja frá Hrísdal með einkunnina 7.167 Randi Holaker og…Lesa meira

true

Mótmæla því að brotaþoli hafi aðeins stöðu vitnis

Í gangi er undirskriftasöfnun á vegum Stígamóta er varðar réttarstöðu brotaþola, en í dag hafa brotaþolar aðeins stöðu vitnis. Með undirskriftasöfnuninni er verið að skora á dómsmálaráðherra að jafna stöðu brotaþola með því að veita þeim aðild að sínum málum og öll sambærileg réttindi á við sakborninga. Í dag hafa yfir 10.000 manns skrifað undir,…Lesa meira

true

Fámennt í Leikskólanum í Stykkishólmi

Kórónuveiran hefur herjað á landsmenn af fullum krafti undanfarnar vikur og hefur það haft töluverð áhrif í samfélaginu. Í Leikskólanum í Stykkishólmi hefur mikið verið um fjarvistir bæði í hópi barna og starfsfólks. Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri var einmitt í eldhúsinu að græja hádegismat þegar blaðamaður Skessuhorns heyrði í henni fyrr í dag. „Maður gengur bara…Lesa meira

true

Byggingarnefnd skipuð vegna stækkunar Kleppjárnsreykjaskóla

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt erindisbréf nýrrar byggingarnefndar vegna viðbyggingar við Kleppjárnsreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar, og skipað í nefndina. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir verður formaður nefndarinnar en auk hennar sitja í henni sem aðalmenn þau Lilja Björg Ágústsdóttir, Logi Sigurðsson, Guðveig Eyglóardóttur og Davíð Sigurðsson. Í fjárhagsáætlun fyrir árin 2022-2025 er áætlað að verja 795 milljónir króna til…Lesa meira

true

Löndunarbið í loðnuvinnslu

Tvö loðnuveiðiskip eru nú í höfn á Akranesi. Verið er að dæla loðnu úr Venusi NS 100 sem kom til hafnar í gærkvöldi, en Guðrún Þorkelsdóttir frá Eskifirði bíður átekta. Versnandi veður er nú á svæðinu.Lesa meira

true

Stofnvegum lokað vegna óveðurs

Búið er að loka fyrir umferð á nokkrum af helstu stofnvegum suðvestanlands vegna óveðurs. Þannig eru nú vegirnir um Kjalarnes, Hafnarfjall og Fróðárheiði lokaðir. Fólki er bent á að fylgjast með ástandi vega á vef Vegagerðarinnar, http:/vegag.is  Lesa meira