Mótmæla því að brotaþoli hafi aðeins stöðu vitnis

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gangi er undirskriftasöfnun á vegum Stígamóta er varðar réttarstöðu brotaþola, en í dag hafa brotaþolar aðeins stöðu vitnis. Með undirskriftasöfnuninni er verið að skora á dómsmálaráðherra að jafna stöðu brotaþola með því að veita þeim aðild að sínum málum og öll sambærileg réttindi á við sakborninga. Í dag hafa yfir 10.000 manns skrifað undir, en söfnun undirskrifta lýkur eftir fimm daga. „Þolendur kynbundins ofbeldis eru meira en vettvangur glæps,“ segir í yfirskrift áskorunarinnar. „Við sættum okkur ekki við það að þolendur ofbeldis séu vitni í eigin kærumálum. Við krefjumst þess að brotaþolar fái aðild að málum sínum og öll sambærileg réttindi á við sakborninga. Dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, mun á næstu vikum leggja fram frumvarp um bætta réttarstöðu brotaþola. Nú er tækifærið til að stíga skref í áttina að bættu samfélagi með réttarkerfi sem tekur almennilega á kynbundnu ofbeldi. Gerum brotaþola að aðila máls!“\r\n\r\n<a href=\"https://askorun.stigamot.is/\">Slóð á undirskriftasöfnunina er hér</a>",
  "innerBlocks": []
}