{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kórónuveiran hefur herjað á landsmenn af fullum krafti undanfarnar vikur og hefur það haft töluverð áhrif í samfélaginu. Í Leikskólanum í Stykkishólmi hefur mikið verið um fjarvistir bæði í hópi barna og starfsfólks. Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri var einmitt í eldhúsinu að græja hádegismat þegar blaðamaður Skessuhorns heyrði í henni fyrr í dag.\r\n\r\n„Maður gengur bara í þau störf sem þarf,“ segir hún og hlær. „Við höfum sloppið ótrúlega vel hér í Stykkishólmi fram til þessa en svo bara hellist þetta yfir okkur núna. Ég held samt að ástandið sé að lagast,“ segir Sigrún. Síðustu daga hefur verið heldur fámennt í leikskólanum en þegar mest lét var aðeins þriðjungur starfsfólks í vinnu og 15 börn af 85. Leikskólinn hefur verið opinn frá klukkan 9-15 undanfarna daga og foreldrar sem geta haft börnin sín heima beðnir um að gera það. „Foreldrar hafa tekið rosalega vel í þetta en auðvitað eru aðstæður misjafnar hjá fólki og ekki allir sem hafa tök á að vera með börnin sín heima. Það er alveg skiljanlegt,“ segir Sigrún og bætir því við að þrátt fyrir aðstæður hefur starfið gengið vel og börnin aldrei verið of mörg fyrir starfsfólkið. „Fólk hér vill held ég leggja sig fram við að stöðva smit og flestir halda börnunum sínum heima ef það eru veikindi á heimilinu. Við starfsfólkið höfum líka verið með grímur á okkur allan daginn sem við höfum ekki gert áður. En við reynum eins og hægt er að koma í veg fyrir frekari smit. Vonandi getum við svo opnað hér í næstu viku með eðlilegum hætti,“ segir Sigrún.",
"innerBlocks": []
}
Fámennt í Leikskólanum í Stykkishólmi - Skessuhorn