{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú er mjög hvasst og ekkert ferðaveður í uppsveitum Borgarfjarðar og raunar um gjörvallan landshlutann. Allir helstu stofnbrautir eru lokaðar, svo sem vegurinn um Kjalarnes, Holtavörðuheiði og við Hafnarfjall. Um hádegisbil lenti rúta með sjö farþega þversum á Hálsasveitarvegi í Borgarfirði og er vegurinn lokaður af þeim sökum. Unnið er að björgun. Þá eru þakplötur að fjúka af fjárhúsum efst í Stafholtstungum og björgunarsveitir einnig verið kallaðar út til aðstoðar þar.",
"innerBlocks": []
}
Mjög hvasst í uppsveitum Borgarfjarðar - Skessuhorn