
Börn að leik. Myndin er úr safni Skessuhorns frá 2008 og því börnin sem þarna eru á mynd í dag orðin fullorðið og ráðsett fólk.
Byggingarnefnd skipuð vegna stækkunar Kleppjárnsreykjaskóla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt erindisbréf nýrrar byggingarnefndar vegna viðbyggingar við Kleppjárnsreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar, og skipað í nefndina. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir verður formaður nefndarinnar en auk hennar sitja í henni sem aðalmenn þau Lilja Björg Ágústsdóttir, Logi Sigurðsson, Guðveig Eyglóardóttur og Davíð Sigurðsson. Í fjárhagsáætlun fyrir árin 2022-2025 er áætlað að verja 795 milljónir króna til að ljúka við fyrsta áfanga viðbyggingar við skólann. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorns er hluti gömlu grunnskólabyggingarinnar ónothæfur vegna raka og myglu. Áætlað er að rífa þann hluta og byggja nýja byggingu á sama stað. Nú þegar hefur verið gerð þarfagreining og verkefnið sett í forhönnun.\r\n\r\nVerkefni byggingarnefndar verður að undirbúa hönnun skólahúsnæðisins og framkvæma útboð og velja framkvæmdaraðila. „Verkefnið skal innihalda alla þá þætti sem nauðsynlegir eru til að starfsemi hefjist í húsnæðinu að verkefni loknu og skulu kostnaðaráætlanir taka mið af öllum verkþáttum til að svo megi vera,“ segir í erindisbréfi byggingarnefndar Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum.",
"innerBlocks": []
}