Óvissustig Almannavarna vegna slæmrar veðurspár víða um land

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vegna veðurs sem er fram undan víða um land ákvað Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestmannaeyjum og Vestfjörðum að lýsa yfir óvissustigi Almannavarna frá klukkan 08:00 í dag, föstudaginn 25. febrúar.  Samhæfingarmiðstöð Almannavarna hefur verið starfrækt frá klukkan 8:00 og verður fram eftir degi. Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður versta veðrið í dag frá klukkan 11 og fram undir kvöld í dag.\r\n\r\n„Eins og fram hefur komið þá hefur Veðurstofa Íslands gefið út appelsínugular viðvaranir fyrir sex spásvæði og gular viðvaranir fyrir fimm. Það mun hvessa með morgninum, suðaustan 18-28 m/s með skafrenningi, snjókomu og síðar talsverðri slyddu eða rigningu.\r\n\r\nMikilvægt er að ganga vel frá lausum munum og hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Talsverð hætta er á foktjóni auk þess sem samgöngur geta verið erfiðar um tíma. Lokanir á vegum eru líklegar. Best er að fylgjast með lokunum vega á vef Vegagerðarinnar. Almannavarnir halda áfram að fylgjast vel með og miðla upplýsingum til fjölmiðla um stöðuna,“ segir í tilkynningu.",
  "innerBlocks": []
}
Óvissustig Almannavarna vegna slæmrar veðurspár víða um land - Skessuhorn