Samþykkt að framlengja lokunar- og viðspyrnustyrki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alþingi samþykkti í gær frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra um framhald lokunarstyrkja og viðspyrnustyrkja vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Framhald lokunarstyrkja er hugsað fyrir þá sem þurftu tímabundið að loka starfsemi sinni vegna sóttvarnaráðstafana og urðu af verulegum tekjum vegna þess. Úrræðið er í öllum meginatriðum sambærilegt og gilti um fyrri lokunartímabil í faraldrinum. Hámarksfjárhæð lokunarstyrkja verður hækkuð úr 260 millj. kr. í 330 millj. kr. Upphaflega gilti tímabundni ramminn til 31. desember 2020 en hann hefur verið framlengdur og gildir nú út júní 2022.\r\n\r\nÞá var einnig samþykkt framhald á lögum um viðspyrnustyrki sem fela í sér aðstoð til rekstraraðila sem orðið hafa fyrir a.m.k. 40% tekjufalli í almanaksmánuði m.v. sama mánuð árið 2019. Styrkurinn nemur 90% af rekstrarkostnaði rekstraraðila í mánuðinum en þó aldrei hærri en 2,5 m. kr. Styrkirnir hafa einkum nýst smærri rekstraraðilum, t.a.m. í ferðaþjónustu, veitingaþjónustu, heild- og smásölu, sem og í menningargreinum. Viðspyrnustyrkir tóku við að tekjufallsstyrkjum og hafa verið veittir frá nóvember 2020 en úrræðinu lauk í nóvember 2021. Með framlengingu úrræðisins munu rekstraraðilar geta sótt um viðspyrnustyrki fyrir tímabilið desember 2021 og út mars 2022.\r\n\r\nSkatturinn sér um afgreiðslu lokunar- og viðspyrnustyrkja.",
  "innerBlocks": []
}
Samþykkt að framlengja lokunar- og viðspyrnustyrki - Skessuhorn