{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst klukkan 19 í kvöld með keppni í fjórgangi. Keppt verður í Faxaborg, reiðhöllinni í Borgarnesi. Fyrir tveimur árum varð að blása mótið af vegna heimsfaraldurs og á síðasta ári gafst áhorfendum ekki kostur á að fylgjast með mótinu á staðnum. Í kvöld gefst áhorfendum kostur á að fjölmenna í stúkuna og fylgjast með mótinu. Þá verður því einnig streymt í beinni útsendingu á streymisveitunni Alendis; <a href=\"https://alendis.tv/\">https://alendis.tv/</a>\r\n\r\nDagskrá Vesturlandsdeildarinnar verður þannig að 10. mars verður keppt í slaktaumatölti, 25. mars í gæðingafimi, 8. apríl í fimmgangi og 29. apríl í tölti og skeiði. Sjö lið taka þátt í mótinu að þessu sinni; Berg, Hergill, Hestaland, Laxárholt, Stöðulsholt, Uppsteypa og Steinsholt/Hallkelsstaðahlíð.",
"innerBlocks": []
}