Guðrúnarlaug í Sælingsdal. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Talning ferðamanna í Dalabyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi atvinnumálanefndar Dalabyggðar síðastliðinn þriðjudag var tekið fyrir erindi Ferðamálastofu varðandi hentugan stað fyrir uppsetningu teljara en enginn teljari er nú til staðar í Dalabyggð. Ferðamálastofa stendur fyrir talningu á ferðamannastöðum víða um landið. Talningin fer fram með sjálfvirkum teljara sem telur gangandi vegfarendur með mikilli nákvæmni. Miðað er við að telja á stöðum þar sem öll eða nánast öll gangandi umferð fer sama stíginn. Tölurnar eru svo birtar um það bil daglega í Mælaborði ferðaþjónustunnar.\r\n\r\nAtvinnumálanefndin lýsti yfir ánægju með að haft væri samband við Dalabyggð varðandi uppsetningu teljara. Nefndin taldi mikilvægt að teljarinn verði settur upp í samráði við landeigendur. Nefndin lagði til við Ferðamálastofu að skoða uppsetningu við Guðrúnarlaug að Laugum í Sælingsdal, Eiríksstaði í Haukadal eða við leiðina upp að Tregasteini að Seljalandi í Hörðudal.",
  "innerBlocks": []
}
Talning ferðamanna í Dalabyggð - Skessuhorn