
Síðastliðið mánudagskvöld flæddi sjór yfir hluta Ægisbrautar á Akranesi. Varnagarður norðan við götuna mátti sín lítils þegar saman fór óvenju mikil ölduhæð vegna djúprar lægðar og stórstreymi. Aldrei hefur verið lokið við gerð sjóvarnargarðs sem endar á móts við skólpdælustöðina. Aðkeyrslan framan við dælustöðina var því sem stórfljót yfir að líta á mánudagskvöldið. Mestur aurburður…Lesa meira








