
Vegurinn um Skógarströnd.
Endurflutti tillögu um að kanna hagkvæmni Skógarstrandarvegar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bjarni Jónsson alþingismaður VG í Norðvesturkjördæmi mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um að gerð verði hagkvæmniathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar. Meðflutningsmaður að tillögunni er Steinunn Þóra Árnadóttir. Þar segir: „Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að hlutast til um að gerð verði fjölþætt hagkvæmniathugun á uppbyggingu þess hlutar stofnvegar nr. 54 sem kallast Skógarstrandarvegur og er á norðanverðu Snæfellsnesi, milli Búðardals og Stykkishólms, sem heilsársvegar. Athugunin taki til samfélagslegra og byggðarlegra áhrifa þess að efla þannig samgöngur á milli byggðarlaga á norðanverðu Snæfellsnesi, um Dali, í Reykhólasveit, sunnanverða Vestfirði og norður á Strandir. Sérstaklega verði litið til styrkingar svæðisins sem eins atvinnu- og þjónustusvæðis, uppbyggingar ferðaþjónustu og vegaöryggis. Ráðherra leggi niðurstöður hagkvæmnisathugunarinnar fyrir Alþingi ásamt kostnaðaráætlun vegna uppbyggingarinnar í síðasta lagi 15. september 2022.“\r\n\r\nÍ greinargerð með tillögunni segir að hún hafi ítrekað áður verið lögð fram á undangengnum þingum, meðal annars af Sigurði Páli Jónssyni fv. þingmanni, en hafi ekki hlotið afgreiðslu. „…þar sem ástand Skógarstrandarvegar er enn áþekkt því sem var er hún var fyrst flutt og áætlanir gera ekki ráð fyrir endurbótum í bráð er hún endurflutt nú, óbreytt en með uppfærðri greinargerð, enda má ætla að sú hagkvæmnisathugun sem lögð er til verði til þess að treysta forsendur ákvörðunar um skjótari aðgerðir við uppbyggingu Skógarstrandarvegar en nú eru áformaðar.“\r\n\r\nRannsókn sem gerð var á slysatíðni á vegum á árunum 2007–2010, undir stjórn Þórodds Bjarnasonar, leiddi í ljós að Skógarstrandarvegur var einn þriggja hættulegustu vegarkafla landsins. Í greinargerðinni segir jafnframt að ekki sé ástæða til að ætla að þetta hafi breyst til bóta þar sem fréttir af umferðaróhöppum á þessum vegi eru tíðar enda ástand hans bágborið og ljóst að hann stendur engan veginn undir þeirri umferð sem um hann fer né þjónar hann því hlutverki sínu að mynda greið tengsl milli byggðra bóla þar sem hann liggur.",
"innerBlocks": []
}