{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Senn líður að lokum sýningarinnar Börn í 100 ár í Safnahúsi Borgarfjarðar og er síðasti sýningardagur á morgun, föstudagurinn 11. febrúar. Sýningin var fyrst sett upp árið 2008. Hún hlaut frá upphafi einróma lof þeirra sem hana sóttu, ekki síst fyrir frumleika og nýstárlega hugsun hönnuðarins, Snorra Freys Hilmarssonar leikmyndateiknara. Þar er saga Íslands á 20. öld sögð út frá sjónarhóli barna í landinu. Sagan er sögð í ljósmyndum þar sem er eins og gestir gangi inn í risavaxið myndaalbúm sem hægt er að opna eins og jóladagatal.\r\n\r\nBreytingar verða nú gerðar á fyrstu hæð Safnahússins á næstu misserum og því verður sýningin tekin niður í þeirri mynd sem hún er. Endurgerð baðstofunnar frá Úlfsstöðum og fuglasýningin verða enn til staðar fyrir gesti og við bætist rými sem mun nýtast fyrir tímabundnar sýningar safnanna.\r\n\r\nÞá segir í frétt Borgarbyggðar um sýningarlokin að spennandi tímar séu fram undan í Safnahúsinu og vinna sé hafin við að rýna starfsemi Safnahússins með tillögu að framtíðarskipan þeirra safna sem heyra undir Safnahús Borgarfjarðar. „Virkt samtal við nærsamfélagið og fagleg nálgun í safnastarfi ber þar hæst. Allir eiga erindi í Safnahús Borgarfjarðar og hlakkar starfsfólk safnsins til þess að taka á móti gestum í opnu rými menningar og samfélags,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nOpið er í Safnahúsinu í Borgarbyggð alla daga frá klukkan 13 til 16 og er frítt inn.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50996\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50996 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Syningin-Born-i-100-ar-hefur-verid-tekin-nidur_1-600x363.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"363\" /> Á miðju gólfi sýningarinnar stendur merkur minjagripur; Willys jeppi Jóhönnu Jóhannsdóttur ljósmóður sem tók á móti börnum í Borgarfirði um áratugaskeið á liðinni öld.[/caption]",
"innerBlocks": []
}