Morgunganga hjá nokkrum félögum betri borgaranna.

„Fólk verður að hafa eitthvað fyrir stafni“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Félagsstarf eldri borgara og öryrkja fyrir 60 ára og eldri á Akranesi er starfrækt á Dalbraut 4. Starfinu er ætlað að fyrirbyggja félagslega einangrun og koma til móts við áhugasvið, færni og þekkingu þátttakenda á hverjum tíma í ýmis konar listsköpun og verkefnum sem oft eru árstíðabundin. Félagsstarf aldraðra hefur það markmið að stuðla að samskiptum og veita félagsskap. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna og réttinda eldra fólks á Akranesi og nágrenni og vinna að málefnum aldraðra í landinu.\r\n\r\nStarfsemi félagsins hefur undið upp á sig á þeim 33 árum sem það hefur starfað og núna eru 730 skráðir félagar og þar af hafa yfir 50 manns skráð sig í félagið síðan í haust. Í stjórn og varastjórn eru tíu manns. Með stjórninni starfa sex nefndir innan félagsins sem sjá um ákveðna þætti í starfseminni og sinna hver um sig sérstökum verkefnum eins og nöfn þeirra bera með sér. Nefndirnar eru húsnefnd, menningar- og fræðslunefnd, skemmtinefnd, kórnefnd, íþróttanefnd og uppstillingarnefnd. Alls eru um 50 manns sem sitja í stjórnum og nefndum félagsins.\r\n\r\n<em>Í Skessuhorni vikunnar er rætt við Ragnheiði Hjálmarsdóttur sem tók við formennsku í FEBAN á síðasta ári. Fræðst er um það félagsstarf sem er í boði, en það er fjölbreyttara en marga grunar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
„Fólk verður að hafa eitthvað fyrir stafni“ - Skessuhorn