Framkvæmdir og sprengingar hefjast á Sólbakka á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegna framkvæmda á lóð Borgarverks á Sólbakka í Borgarnesi hyggst fyrirtækið hefja vinnu við sprengingar á svæðinu á morgun, fimmtudaginn 10. febrúar. Áætlað er að vinnan standi yfir næstu þrjár vikur. Ekki verður sprengt á fyrirfram ákveðnum tíma, en stefnt er að því að það verði að öllu jöfnu gert seinni hluta dags.\r\n\r\nFramkvæmdaaðilar munu ræða við eigendur og starfsfólk nærliggjandi húsa áður en vinna hefst. Þá munu þeir gefa hljóðmerki hverju sinni áður en sprengt verður. \"Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,\" segir í tilkynningu um sprengingarnar á vef Borgarbyggðar.",
"innerBlocks": []
}
Framkvæmdir og sprengingar hefjast á Sólbakka á morgun - Skessuhorn