Vegtálmi á gamla þjóðveginum milli þéttbýlisins og Æðarodda. Ljósm. mm.

Tímabundin lokun gamla þjóðvegarins í svartasta skammdeginu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrr í vetur var tekin ákvörðun um að koma fyrir tímabundinni veglokun á gamla þjóðveginum við Akranes og var vegartálma komið fyrir austan við garðyrkjustöðina. Vegurinn er í eigu og umsjón Akraneskaupstaðar eftir að Vegagerðin skilaði honum á sínum tíma í kjölfar þess að nýr þjóðvegur var lagður inn í bæinn. Reiðvegur liggur samsíða gamla þjóðveginum. Að beiðni félagsmanna í hestamannafélaginu Dreyra var á vettvangi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar tekin sú ákvörðun í vetur að setja vegartálmann upp fyrir akandi umferð. Það féll hins vegar ekki öllum frístundabændum í geð, en þeir eru nokkrir sem eiga fjárhús sín meðfram veginum. Hefur verið vandkvæðum bundið fyrir þá að komast t.d. með hey um veginn. Þetta hefur skapað núning í samskiptum frístundabænda og hestamanna á Æðarodda.\r\n\r\nSkessuhorni barst beiðni um að kanna hverju þessi veglokun sætti og leitaði til Ragnars Sæmundssonar, formanns skipulags- og umhverfisráðs. „Ábending barst bæjaryfirvöldum síðasta haust um að þarna hefði verið töluvert um hraðakstur, akstur bifhjóla og eins hefðu farið þarna um stærri bílar. Hestamenn teldu öryggi sínu því ógnað þegar riðið er út á reiðveginum sem liggur samhliða veginum. Gamli vegurinn er upplýstur frá Æðarodda og að Innsta- Vogi og er mikið notuður á þessum tíma árs við tamningar og þá gjarnan á hrossum sem eru óörugg. Ég sem formaður skipulags- og umhverfisráðs, ásamt sviðsstjóri, tókum þá ákvörðun að loka veginum fyrr í vetur og var fyrst og fremst um öryggisráðstöfun að ræða. Nú hefur skipulags- og umhverfisráð ákveðið að vegurinn verði opnaður fyrir almennan akstur í byrjun apríl í vor. Þá er einnig ákveðið að funda með félögum í hestamannafélaginu og frístundabændum fyrir næsta vetur og finna varanlega lausn á þessu máli,“ segir Ragnar í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nÍ bókun skipulags- og umhverfisráðs frá því á mánudaginn er fjallað um hvernig staðið verði að þrengingum á veginum í framtíðinni til að hindra umferð stærri bíla. Þar kemur fram að hugmyndin sé að sett verði keðja milli steina í veglokuninni á tímabilinu október til og með mars. Fjárbændur á svæðinu fái afhenta lykla til að opna keðjuna til að þeir geti athafnað sig á svæðinu. Sett verður upp botnlangaskilti við Hausthústorg og hestahverfið í Æðarodda meðan lokun fyrir almenna umferð er í gangi. Með þessum aðgerðum verði reynt að tryggja öryggi hestamanna og annarra vegfaranda á svæðinu.",
  "innerBlocks": []
}
Tímabundin lokun gamla þjóðvegarins í svartasta skammdeginu - Skessuhorn