
Seint á mánudagskvöldið var gatan sem samfelldur sjór yfir að líta. Ljósm. þs.
Ægisbrautin var sem sjór yfir að líta
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðið mánudagskvöld flæddi sjór yfir hluta Ægisbrautar á Akranesi. Varnagarður norðan við götuna mátti sín lítils þegar saman fór óvenju mikil ölduhæð vegna djúprar lægðar og stórstreymi. Aldrei hefur verið lokið við gerð sjóvarnargarðs sem endar á móts við skólpdælustöðina. Aðkeyrslan framan við dælustöðina var því sem stórfljót yfir að líta á mánudagskvöldið. Mestur aurburður varð framan við Bílaverkstæði Hjalta þar sem vatn náði tíu sentimetra upp á hurðir. Á verkstæðið þurfti því að kalla til mannskap um kvöldið til að verja hús og tæki sem og kalla til verktaka til að hreinsa frá niðurföllum. Svo þegar flóðinu linnti þurfti að hreinsa töluvert mikinn aur af götunni og bílastæðum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"51007,51008,51009,51010\"]",
"innerBlocks": []
}