
Justyna er bara frekar sátt við veturinn á Íslandi. Ljósm. bj.
Fuglarnir hvíla sig aldrei
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þau Justyna Jakubowska og Szymon Bartkowiak eru frá Środa Wielkopolska (Justyna) og Jarocin (Szymon) í Póllandi, en hafa búið í Búðardal í næstum fjögur ár. Þau eru glaðlega og elskulega parið sem býður góðan daginn í Dalakoti. Fréttaritari Skessuhorns settist niður með þeim til að spjalla aðeins um þau sjálf og hvernig þau upplifa sig í Dölunum. Þeirra heimabæir eru smábæir, um 20 þúsund manns búa í hvorum. Þau líkja búsetu þar við að búa á Akranesi, þar sem fólk sækir mikið vinnu til næstu borgar, sem í þeirra tilfelli er Poznań, þar sem býr rúmlega hálf milljón manna. Justyna stundaði nám þar í hagfræði og Szymon vann hjá prentfyrirtæki og þau ferðuðust daglega með lest inn til borgarinnar. Þau dreymdi um að gera eitthvað ævintýralegt í lífinu áður en þau yrðu ráðsett og drifu sig þess vegna út í heim.\r\n\r\n<em>Sjá viðtal við þau Justyna og Szymon í Skessuhorni vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}