Fréttir

true

Ætlaði varla að finna bátinn fyrir snjó

Eins og víðar um landið hefur veður verið með ýmsum hætti á Snæfellsnesi að undanförnu og töluvert snjóað suma dagana. Meðfylgjandi mynd var tekin í gær. Þá var Jóhannes Stefánsson skipsverji á línubátnum Kviku SH í óða önn að moka bátinn. Mikill snjór hafði safnast í bátinn. Veðurspáin er nú hagstæðari svo smærri bátar ættu…Lesa meira

true

Á skíðum skemmti ég mér, tra, lallala…

Í síðustu viku var að frumkvæði Golfklúbbs Borgarness og Hótel Hamars rudd skíðagöngubraut með spori á Hamarsvelli í Borgarnesi. Fólk kunni því vel en hér má sjá þær Jónínu Hólmfríði Pálsdóttur og Björg Kristófersdóttur í góðum gír í brautinni á fimmtudaginn. Sjá nánar frétt í Skessuhorni.Lesa meira

true

Fuglarnir hvíla sig aldrei

Þau Justyna Jakubowska og Szymon Bartkowiak eru frá Środa Wielkopolska (Justyna) og Jarocin (Szymon) í Póllandi, en hafa búið í Búðardal í næstum fjögur ár. Þau eru glaðlega og elskulega parið sem býður góðan daginn í Dalakoti. Fréttaritari Skessuhorns settist niður með þeim til að spjalla aðeins um þau sjálf og hvernig þau upplifa sig…Lesa meira

true

Sýningunni Börn í 100 ár að ljúka í Borgarnesi

Senn líður að lokum sýningarinnar Börn í 100 ár í Safnahúsi Borgarfjarðar og er síðasti sýningardagur á morgun, föstudagurinn 11. febrúar. Sýningin var fyrst sett upp árið 2008. Hún hlaut frá upphafi einróma lof þeirra sem hana sóttu, ekki síst fyrir frumleika og nýstárlega hugsun hönnuðarins, Snorra Freys Hilmarssonar leikmyndateiknara. Þar er saga Íslands á 20.…Lesa meira

true

Tímabundin lokun gamla þjóðvegarins í svartasta skammdeginu

Fyrr í vetur var tekin ákvörðun um að koma fyrir tímabundinni veglokun á gamla þjóðveginum við Akranes og var vegartálma komið fyrir austan við garðyrkjustöðina. Vegurinn er í eigu og umsjón Akraneskaupstaðar eftir að Vegagerðin skilaði honum á sínum tíma í kjölfar þess að nýr þjóðvegur var lagður inn í bæinn. Reiðvegur liggur samsíða gamla…Lesa meira

true

Framkvæmdir og sprengingar hefjast á Sólbakka á morgun

Vegna framkvæmda á lóð Borgarverks á Sólbakka í Borgarnesi hyggst fyrirtækið hefja vinnu við sprengingar á svæðinu á morgun, fimmtudaginn 10. febrúar. Áætlað er að vinnan standi yfir næstu þrjár vikur. Ekki verður sprengt á fyrirfram ákveðnum tíma, en stefnt er að því að það verði að öllu jöfnu gert seinni hluta dags. Framkvæmdaaðilar munu…Lesa meira

true

Kokkurinn sem vildi verða leikari

„Þegar ég var yngri þá var það aldrei í huga mér að verða matreiðslumaður. Þó að afi minn, Gunnar H. Elíasson sem ég leit mikið upp til, hafi verið lærður bakari og einnig með sveinsbréf í matreiðslu og kjötiðn. Það smitaðist ekkert yfir til mín til að byrja með. Ég var frekar fyrirferðamikill sem unglingur…Lesa meira

true

Endurflutti tillögu um að kanna hagkvæmni Skógarstrandarvegar

Bjarni Jónsson alþingismaður VG í Norðvesturkjördæmi mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um að gerð verði hagkvæmniathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar. Meðflutningsmaður að tillögunni er Steinunn Þóra Árnadóttir. Þar segir: „Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að hlutast til um að gerð verði fjölþætt hagkvæmniathugun á uppbyggingu þess hlutar stofnvegar nr. 54 sem kallast Skógarstrandarvegur og…Lesa meira

true

Samningur um lagningu hitaveitu í Hvalfjarðarsveit

Gengið hefur verið frá samningi við Jónas Guðmundsson ehf. á Bjarteyjarsandi um lagningu hitaveitu að Heiðarskólasvæðinu og í Leirársveit, en frá þessu var greint á vef Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða lögn sem liggur frá tengingu inn á lögn Veitna ohf. við Beitistaði þaðan sem hitaveita verður lögð að þeim bæjum í Leirársveit sem óskað…Lesa meira

true

Afurðahæstu sauðfjárbúin á Vesturlandi

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins tekur árlega saman niðurstöðu skýrsluhalds í sauðfjárrækt í landinu. Eyjólfur Ingvi Bjarnason ráðunautur tók saman fyrir Skessuhorn niðurstöðu fimm hæstu búa á Vesturlandi, flokkað eftir sýslum. Afurðahæsta sauðfjárbúið á Vesturlandi er búið á Hellum í Bæjarsveit í Borgarfirði. Þar skilar hver á að meðaltali 35,1 kg. kjöts þegar teknar eru saman afurðir fullorðinna…Lesa meira