
Fé rekið til Svarthamarsréttar í Hvalfirði sl. haust. Ljósm. Kolla Ingvars.
Afurðahæstu sauðfjárbúin á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins tekur árlega saman niðurstöðu skýrsluhalds í sauðfjárrækt í landinu. Eyjólfur Ingvi Bjarnason ráðunautur tók saman fyrir Skessuhorn niðurstöðu fimm hæstu búa á Vesturlandi, flokkað eftir sýslum.\r\n\r\nAfurðahæsta sauðfjárbúið á Vesturlandi er búið á Hellum í Bæjarsveit í Borgarfirði. Þar skilar hver á að meðaltali 35,1 kg. kjöts þegar teknar eru saman afurðir fullorðinna og veturgamalla áa. Þar af leiðandi er búið einnig hæst í Borgarfjarðarsýslu. Í Dölum er bú Birgis Baldurssonar á Bæ afurðahæst með 32,4 kg. eftir hverja á, hundrað grömmum meira en bú Eyjólfs Ingva og Lóu í Ásgarði. Í Mýrasýslu er bú þeirra Sigurgeirs Sindra og Kristínar í Bakkakoti hæst með 32 kg eftir hverja á. Í Snæfellsnessýslu er Gaularbúið afurðahæst með 30,7 kg eftir hverja á.\r\n\r\nNokkur stór sauðfjárbú komast á listann, eins og sjá má. Hjá bændum á Klifmýri á Skarðsströnd í Dölum er t.d. 1.129 skýrslufærðar ær en þær gefa af sér að meðaltali 31,5 kíló sem verður að teljast býsna góður árangur og skilar búinu í fjórða sæti yfir afurðir í Dalasýslu. Sömu sögu má segja víðar. Í Skorholti í Melasveit eru t.d. 767 skýrslufærðar ær sem skila að meðaltali 29,8 kílóum kjöts. Hjá Sigurði Hallbjörnssyni í Krossholti eru 816 skýrslufærðar ær sem skiluðu 29,3 kílóum að meðaltali.\r\n\r\nEf skoðuð er frjósemi áa í landshlutanum er hún mest á Bakkakotsbúinu í Stafholtstungum, eða 2,14 lömb eftir hverja á og á Hellnabúinu í Bæjarsveit er hún 2,13 lömb. Sláturfallþungi er mestur á Hellnum 19,7 kíló að meðaltali og hjá bræðrunum Þóri og Guðmundi Finnssonum frá Hóli var hann 19,6 kg. Fyrir gerð, þ.e. skrokkgæði, trónir búið á Hellnum í langefsta sæti með 12,0.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-50944\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Afurdahaestu-saudfjarbuin-a-Vesturlandi_2-600x437.jpg\" alt=\"\" />\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}