
Við undirskrift samningsins, frá vinstri: Hlynur Sigurdórsson, Linda Björk Pálsdóttir, Guðbjörg Jónasdóttir og Jónas Guðmundsson. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.
Samningur um lagningu hitaveitu í Hvalfjarðarsveit
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Gengið hefur verið frá samningi við Jónas Guðmundsson ehf. á Bjarteyjarsandi um lagningu hitaveitu að Heiðarskólasvæðinu og í Leirársveit, en frá þessu var greint á vef Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða lögn sem liggur frá tengingu inn á lögn Veitna ohf. við Beitistaði þaðan sem hitaveita verður lögð að þeim bæjum í Leirársveit sem óskað hafa eftir tengingu og ekki hafa haft aðgengi að hitaveitu fram að þessu. Framkvæmdir munu hefjast 14. febrúar og eru áætluð verklok 16. júní í sumar.\r\n\r\nÞað var á haustmánuðum 2020 sem sveitarfélagið óskaði eftir tengingu við lögn Veitna í landi Beitistaða fyrir hitaveitu að Heiðarskóla og frumathugun verkefnisins hófst. Fram til vorsins 2021 var unnið að samanburðargreiningu á hagkvæmni hitaveitukosta ásamt viðræðum við Veitur ohf. og Hitaveitufélag Hvalfjarðar sf. um möguleg kjör við kaup á heitu vatni úr stofnæðum félaganna. Í mars 2021 samþykkti sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar að ganga til samninga við Veitur ohf. Í beinu framhaldi var leitað eftir tilboðum í verkefnisstjórn, hönnun og aðra umsýslu með verkefninu. Ritað var undir þann verksamning 14. maí 2021 og í júlí sama ár var gerð verðkönnun á jarðvinnu fyrir verkið sem lá fyrir í byrjun ágúst 2021. Í október síðastliðnum var ritað undir samning við Veitur ohf. um heildsölu á heitu vatni og í kjölfar þess hófst vinna við gerð samninga við landeigendur á lagnaleiðinni ásamt umsóknum um tengingar við veituna. Samningar voru frágengnir rétt fyrir síðustu áramót og í beinu framhaldi hans hefur nú verið ritað undir verksamning vegna jarðvegsframkvæmda og hitaveitulagna.",
"innerBlocks": []
}