Fréttir

true

Búa sig undir verkefni næturinnar

Almennt er búist við því að hin djúpa lægð sem gengur yfir landi í nótt og fyrramálið verði með þeim dýpri á síðustu árum. Frá því nýtt litakóðakerfi var tekið upp af Veðurstofunni fyrir nokkrum árum er þetta í annað skipti sem flaggað er rauðri viðvörun á landinu og í fyrsta skipti hér á suðvesturhorninu.…Lesa meira

true

Vegagerðin gefur út lokunarplan fyrir nóttina

Vegagerðin var nú rétt í þessu að senda frá sér áætlun um lokun vega í nótt vegna óvissustigs sökum lægðarinnar sem gengur yfir landið í nótt og fyrramálið. Þar má sjá að ráðgert er að loka sumum fjölförnum vegum strax eftir miðnætti í nótt. „Við minnum á að þjónustusíminn 1777 fyrir færð á vegum er…Lesa meira

true

Suðaustan rok eða ofsaveður með snjókomu og skafrenningi

Veðurútlit er afleitt fyrir næstu nótt og í fyrramálið og gefnar hafa verið út viðvaranir í öllum litaafbrigðum, en um tíma í nótt gildir rauð viðvörun á Faxaflóasvæðinu og höfuðborgarsvæðinu. Appelsínugul viðvörun er fyrir allt landið í nótt og búist við samgöngutruflunum, rafmagnslínur gætu gefið sig og tjón gæti orðið á lausamunum, húsum og tækjum.…Lesa meira

true

Veiran aldrei snert fleiri á Vesturlandi

Samkvæmt nýjustu samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi eru nú á sjöunda hundrað einstaklingar ýmist í sóttkví eða einangrun með Covid-19 í landshlutanum. Smitleiðir hafa að undanförnu einkum verið í gegnum skóla og samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er það ómikron afbrigði veirunnar sem herjar á landsmenn. Einkenni hennar getur verið kvef og hálsbólga og hár hiti, en þetta…Lesa meira

true

Opnir dagar í FVA í næstu viku

Nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands fá frí frá hefðbundinni stundaskrá í næstu viku þegar árlegir opnir dagar verða í skólanum. Þá gefst nemendum kostur á að taka þátt í mörgum ólíkum námskeiðum og afþreyingu og velur hver nemandi fjóra viðburði sem honum líst best á. Dagskráin hefst á hádegi á þriðjudag með fyrirlestrum og lýkur á…Lesa meira

true

Andlát – Dóra Ólafsdóttir

Dóra Ólafsdóttir, sem var elst allra Íslendinga, lést á hjúkrunarheimilinu Skjólvangi í Reykjavík föstudaginn 4. febrúar á 110. aldursári. Dóra átti lögheimili á Ægissíðu í Hvalfjarðarsveit, þar sem sonurinn Áskell og Vilborg tengdadóttir hennar búa, en dvaldi á hjúkrunarheimilinu síðustu æviárin. Fram undir það síðasta fylgdist Dóra vel með þjóðmálum, íþróttum og mannlífinu, las blöðin…Lesa meira

true

Skagamenn ekki á flugi gegn Haukum

ÍA lék gegn Haukum úr Hafnarfirði í 1. deild karla í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Akranesi. Staða liðanna fyrir leik var ansi ólík, Haukar í öðru sæti deildarinnar með 26 stig eftir 15 leiki og ÍA með tvö stig eftir 18 leiki. Það sást fljótlega munurinn á milli liðanna og í hvað stefndi…Lesa meira

true

Flugvélin fannst á botni Þingvallavatns

Cessna flugvélin TF-ABB sem saknað var á fimmtudaginn með flugmann og þrjá farþega um borð, fannst seint í gærkvöldi í Ölfusvatnsvík, syðst í Þingvallavatni. Fjölmennasta og umfangsmesta leitaraðgerð síðari ári hafði þá staðið yfir að vélinni í hálfan annan sólarhring. Meðal annarra tók þátt í leitinni björgunarsveitarfólk víðsvegar af landinu auk þess sem leitað var…Lesa meira

true

Snjallmælavæðing hafin hjá Veitum

Veitur hófu í vikunni uppsetningu snjallmæla hjá viðskiptavinum sínum en áformað er að setja upp um 160 þúsund slíka mæla á næstu árum og tengja við hugbúnaðarkerfi. Fyrsta hverfið til að fá snjallmæla á starfssvæði Veitna er í póstnúmerinu 103 í Reykjavík, Háaleitis- og Bústaðahverfi. Gert er ráð fyrir að það taki yfir þrjú ár…Lesa meira