Mynd frá opnum dögum í FVA árið 2014. Ljósm. úr safni

Opnir dagar í FVA í næstu viku

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands fá frí frá hefðbundinni stundaskrá í næstu viku þegar árlegir opnir dagar verða í skólanum. Þá gefst nemendum kostur á að taka þátt í mörgum ólíkum námskeiðum og afþreyingu og velur hver nemandi fjóra viðburði sem honum líst best á. Dagskráin hefst á hádegi á þriðjudag með fyrirlestrum og lýkur á fimmtudaginn með íþróttakeppni.\r\n\r\nÁ meðal þess sem verður í boði þessa þrjá daga má nefna að á þriðjudaginn verða fyrirlestrar um karlmennskuna, orkudrykki og áfengi og UN Women. Um kvöldið verður síðan Kaffihúsakvöld og skemmtun á sal FVA.\r\n\r\nÁ miðvikudaginn færist meira fjör í leikinn því þá verður meðal annars fótboltamót, púttkeppni, námskeið í hraðlestri, jóga og djúpslökun og klifri. Eftir hádegi verður námskeið í karaoke, brauðbakstri, sjósundi og handavinnu. Þá geta nemendur einnig skotist í skíðaferð í Bláfjöll þar sem farið er af stað um morguninn og komið heim seinni partinn.\r\n\r\nÁ fimmtudaginn lýkur dagskrá opinna daga með íþróttakeppni milli kennara og nemenda þar sem keppt verður í blaki, bandý og skotbolta og þar er búist við miklum hasar og hörkukeppni.\r\n\r\nAð loknum Opnum dögum verður árshátíð haldin á sal skólans fimmtudagskvöldið 10. febrúar. „Farið verður að ítrustu sóttvarnareglum, salnum er skipt í fjögur hólf, númeruð sæti og grímuskylda,“ segir Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari. Meðal skemmtiefnis má nefna metnaðarfullt árshátíðarmyndband Skutlunnar - kvikmyndaklúbbs FVA, spurningakeppni og Ari Eldjárn verður með uppistand. Veislustjórar verða Auddi og Steindi. Dagskránni lýkur um klukkan 22. Það verður hvorki ball né aðrir viðburðir á vegum skólans eftir það, að sögn Steinunnar Ingu.",
  "innerBlocks": []
}
Opnir dagar í FVA í næstu viku - Skessuhorn