{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt nýjustu samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi eru nú á sjöunda hundrað einstaklingar ýmist í sóttkví eða einangrun með Covid-19 í landshlutanum. Smitleiðir hafa að undanförnu einkum verið í gegnum skóla og samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er það ómikron afbrigði veirunnar sem herjar á landsmenn. Einkenni hennar getur verið kvef og hálsbólga og hár hiti, en þetta afbrigði veirunnar leggst síður á lungun.\r\n\r\nÍ gær voru 608 í einangrun eða sóttkví; 330 í einangrun og 278 í sóttkví. Langflestir á Vesturlandi eru á svæði heilsugæslustöðvanna á Akranesi og í Borgarnesi. Á Akranesi er 191 í einangrun og 166 í sóttkví; í Borgarnesi eru 86 í einangrun og 88 í sóttkví; í Grundarfirði er 31 í einangrun og 12 í sóttkví, í Ólafsvík eru 14 í einangrun og níu í sóttkví; í Stykkishólmi eru fimm í einangrun og tveir í sóttkví og loks í Dölum eru þrír í einangrun og einn í sóttkví.",
"innerBlocks": []
}
Veiran aldrei snert fleiri á Vesturlandi - Skessuhorn