Skagamenn ekki á flugi gegn Haukum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "ÍA lék gegn Haukum úr Hafnarfirði í 1. deild karla í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Akranesi. Staða liðanna fyrir leik var ansi ólík, Haukar í öðru sæti deildarinnar með 26 stig eftir 15 leiki og ÍA með tvö stig eftir 18 leiki. Það sást fljótlega munurinn á milli liðanna og í hvað stefndi strax í byrjun leiks því staðan eftir rúmlega fimm mínútna leik var 7:20 gestunum í vil og eftir fyrsta fjórðung 14:29. Í öðrum fjórðungi  var þetta á svipuðum nótum og munurinn orðinn 20 stig þegar flautað var til hálfleiks, 36:56 fyrir gestunum.\r\n\r\nÍ þeim þriðja bættu Haukar enn í og við forystuna, ÍA alltaf að elta og staðan ekki góð fyrir heimamenn. Þegar þriðja fjórðungnum lauk var forskot Hauka komið yfir 30 stig og aðeins spurning hve sigurinn yrði stór, staðan 53:84 fyrir lokafjórðunginn. ÍA hafði betur stigalega séð í honum og náði að minnka muninn aðeins en sigur gestanna aldrei í hættu, lokastaðan 82:107 fyrir Hauka.\r\n\r\nÍ liði ÍA var Lucien Christofis stigahæstur með 24 stig, Cristopher Clover með 16 stig og Aron Elvar Dagsson með 14 stig. Hjá Haukum var Jeremy Smith með 29 stig, Shemar Bute með 17 stig og 15 fráköst og Jose Aldana með 16 stig.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA er gegn Hrunamönnum föstudaginn 11. febrúar á Flúðum og hefst leikurinn klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn ekki á flugi gegn Haukum - Skessuhorn