Flugvélin fannst á botni Þingvallavatns

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Cessna flugvélin TF-ABB sem saknað var á fimmtudaginn með flugmann og þrjá farþega um borð, fannst seint í gærkvöldi í Ölfusvatnsvík, syðst í Þingvallavatni. Fjölmennasta og umfangsmesta leitaraðgerð síðari ári hafði þá staðið yfir að vélinni í hálfan annan sólarhring. Meðal annarra tók þátt í leitinni björgunarsveitarfólk víðsvegar af landinu auk þess sem leitað var úr lofti. Vélin fannst á um 50 metra dýpi í vatninu og verður viðamikið og flókið verkefni að ná henni upp. Til þess þarf meðal annars eins til tveggja daga stillt veður, en það er ekki í veðurkortunum næstu daga. Vélin fannst með því að sendur var neðansjávar smákafbátur til leitar í vatninu og var þannig hægt að staðsetja flak vélarinnar. Áður hafði leitarfólk séð olíubrák á vatninu á svipuðum slóðum og vélin fannst.",
  "innerBlocks": []
}
Flugvélin fannst á botni Þingvallavatns - Skessuhorn