Versta veðrið við Faxaflóa verður frá klukkan 3 í nótt til klukkan 9 í fyrramálið.

Suðaustan rok eða ofsaveður með snjókomu og skafrenningi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Veðurútlit er afleitt fyrir næstu nótt og í fyrramálið og gefnar hafa verið út viðvaranir í öllum litaafbrigðum, en um tíma í nótt gildir rauð viðvörun á Faxaflóasvæðinu og höfuðborgarsvæðinu. Appelsínugul viðvörun er fyrir allt landið í nótt og búist við samgöngutruflunum, rafmagnslínur gætu gefið sig og tjón gæti orðið á lausamunum, húsum og tækjum. Því er afar brýnt að fólk reyni í dag að tryggja sem best lausamuni og styrkja festingar.\r\n\r\nSíðla nætur og í fyrramálið er rauð viðvörun í gildi við Faxaflóa. Þá verður suðaustan 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni. Búast má við mun hvassara veðri þar sem vindur stendur af fjöllum. „Miklar líkur eru á foktjóni og samgöngutruflunum. Fólki er ráðlagt að ganga vel frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framkvæmdasvæðum,“ segir m.a. í tilkynningu Veðurstofunnar. Eftir hádegi á morgun mánudag mun veðrið taka að ganga niður en áfram verður gul viðvörun í gildi.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50877\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50877 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Vindaspa-manudagsmorgun-600x471.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"471\" /> Þannig lítur vindhraðakort Veðurstofunnar út klukkan 6 í fyrramálið. Litasjatteringarnar sjást á kvarðanum neðst á myndinni. Hvassast gæti orðið við fjöll í uppsveitum Borgarfjarðar þar sem staðvindur fer yfir 40 m/sek.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Suðaustan rok eða ofsaveður með snjókomu og skafrenningi - Skessuhorn