
Guðni Haraldsson og Júlíus Már Þórarinsson í Björgunarfélagi Akraness gera ráð fyrir því að aka á Talibananum út í veðrið í nótt og fyrramálið.
Búa sig undir verkefni næturinnar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Almennt er búist við því að hin djúpa lægð sem gengur yfir landi í nótt og fyrramálið verði með þeim dýpri á síðustu árum. Frá því nýtt litakóðakerfi var tekið upp af Veðurstofunni fyrir nokkrum árum er þetta í annað skipti sem flaggað er rauðri viðvörun á landinu og í fyrsta skipti hér á suðvesturhorninu. Björgunarsveitir, lögregla og aðrir viðbragðsaðilar eru nú við öllu búnir. Svæðisstjórn björgunarsveita í landshlutanum verður sett upp í Borgarnesi og þaðan verður aðsgerðum stýrt, m.a. þeim útkallsbeiðnum sem berast björgunarsveitum í gegnum Neyðarsímann 112. Þá verða björgunarsveitir með mannaðar vaktir hver á sínu svæði eins og þurfa þykir þegar kemur fram á nóttina.\r\n\r\nMeðfylgjandi myndir voru teknar nú síðdegis hjá Björgunarfélagi Akraness. Þar var hópur fólks að gera ýmsan búnað klára, meðal annars að yfirfara strappa sem gjarnan er gripið í til að festa fjúkandi hluti. Þá var gamli Talibaninn kominn út og yfirfarinn, en það er gamall Unimoc hertrukkur árg. 1986 sem hægt er að fara á út í hvaða veður sem er.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-50884\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Bua-sig-undir-verkefni-naeturinnar_2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}