{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Veitur hófu í vikunni uppsetningu snjallmæla hjá viðskiptavinum sínum en áformað er að setja upp um 160 þúsund slíka mæla á næstu árum og tengja við hugbúnaðarkerfi. Fyrsta hverfið til að fá snjallmæla á starfssvæði Veitna er í póstnúmerinu 103 í Reykjavík, Háaleitis- og Bústaðahverfi. Gert er ráð fyrir að það taki yfir þrjú ár að setja upp snjallmæla hjá öllum viðskiptavinum en Veitur reka hitaveitur fyrir um 65% landsmanna og dreifa rafmagni til um 60% þeirra. Að mælaskiptunum loknum verður því meirihluti heimila og fyrirtækja á Íslandi komin með snjallmæla. Kostnaður við þetta verkefni er ríflega fimm milljarðar króna. Samkvæmt korti á vefnum snjallmælar.is má sjá að fyrirhugað er að hefja uppsetningu snjallmæla í hús í Stykkishólmi og Grundarfirði í maí 2024 og á Akranesi og Borgarbyggð í júlí 2024.\r\n\r\n<strong>Mikill ávinningur</strong>\r\n\r\nSnjallmælar eru eðlilegt og jákvætt skref í þróun veitukerfa og hafa stjórnvöld víða um heim gert kröfu um uppsetningu slíkra mæla og verið er að hætta framleiðslu eldri gerða mæla. Ávinningur af snjallmælum fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild er mikill. Allur álestur af mælum verður með snjallmælum rafrænn og viðskiptavinir Veitna fá mánaðarlega uppgjörsreikninga í stað áætlunarreikninga ellefu mánuði ársins og árlegs uppgjörreiknings. Mánaðarlegir reikningar verða þá eftir uppsetningu snjallmælis byggðir á raunnotkun. Því fylgir að viðskiptavinir geta átt von á árstíðarbundnum sveiflum í orkuútgjöldum, sér í lagi vegna hitaveitunotkunar. Á móti kemur að viðskiptavinir greiða einungis fyrir það sem notað er, ekki áætlaða notkun.\r\n\r\nSnjallmælar munu því leiða í ljós ef bilanir verða t.d. í hitaveitugrindum í húsum, eins og dæmi eru um. Slíkar bilanir hafa stundum uppgötvast seint með miklum fjárútlátum fyrir húseigendur. Eftir uppsetningu snallmæla geta viðskiptavinir fengið aðgang að ítarlegum notkunarupplýsingum á Mínum síðum á vef Veitna og verður þannig kleift að fylgjast betur með, breyta notkun sinni og fá þannig tækifæri til að nýta raforkuna og varmann á hagkvæmari hátt. Í framtíðinni verður hægt að tengja rafmagnsmælana við snjöll húskerfi.",
"innerBlocks": []
}