Fréttir

true

Riða greindist í skimunarsýni frá Vatnsnesi

Fyrir skömmu barst Matvælastofnun tilkynning frá Tilraunastöð HÍ að Keldum um að sýni hafi reynst jákvætt m.t.t. riðu. Sauðfjárbúskapur var aflagður á bænum í haust, aðeins er því um þrif og sótthreinsun að ræða. Á hverju hausti er tekinn fjöldi sýna úr fé sem sent er til slátrunar og þau rannsökuð með tilliti til riðu.…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun við Faxaflóa

Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi við Faxaflóa frá kl. 10:00 til 18:00 í dag en þá er spáð vestan 18-28 m/s og vindhviðum sem gætu farið staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má gera ráð fyrir skúrum og síðar éljum með lélegu skyggni versnandi akstursskilyrðum. Á meðan viðvörunin er í gildi verður varasamt ferðaveður og er…Lesa meira

true

Heiðrún opnar sýninguna Hugarflug á Bókasafni Akraness

Á Bókasafni Akraness hefur verið opnuð málverkasýning Heiðrúnar Þorgeirsdóttur. Heiðrún er fædd árið 1940 á Akranesi og bjó hún þar á unglingsárum sínum. Afi hennar var Árni Böðvarsson (1888-1977) ljósmyndari og sparisjóðsstjóri. Heiðrún hefur haldið sýningar víða um land og sýnt bæði glerlistaverk og málverk. Glerlistaverk sín seldi hún í mörg ár í Gallerí List…Lesa meira

true

Vörður með lægsta tilboð í tryggingar

Ný verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands á tryggingum sýnir að mikill munur getur verið á verði á tryggingum og eru neytendur hvattir til að fá tilboð frá ólíkum félögum. Könnunin sýnir að verðlagning tryggingafélaganna er misjöfn eftir tryggingategundum og að minni munur sé á tilboðum tryggingafélaganna ef þau innihalda margar ólíkar tryggingar. Fjórir einstaklingar leituðu eftir…Lesa meira

true

Tóku sýni úr Kambsfénu við leit að geninu dýrmæta

Áhugafólk um sauðfjárrækt bíður nú spennt niðurstaðna úr rannsóknum á sýnum sem tekin voru undir lok síðustu viku úr fénu á Kambi í Reykhólasveit. Rannsakað verður hvort afkomendur kindar frá Kambi beri hið mikilvæga gen, ARR-arfgerð, sem verndar kindur fyrir riðu. Genið sem um ræðir fannst í fé frá bænum Þernunesi við Reyðarfjörð. Féð á…Lesa meira

true

Strákarnir mæta Króatíu í dag

Strákarnir okkar í íslenska karlalandsliðinu í handbolta mæta liði Króata á EM í Búdapest klukkan 14:30 í dag. Danir eru nú á toppi riðilsins með 6 stig en Frakkland og Ísland eru jöfn með 4 stig. Króatía er eina liðið í riðlinum án stiga og getur því ekki tryggt sér sæti í undanúrslitum en Holland…Lesa meira

true

Önnur lægð væntanleg á morgun

Gul veðurviðvörun er við Faxaflóa og Breiðafjörð á morgun. Við Faxaflóa verður viðvörunin í gildi á milli kl. 12:00 og 21:00. Spáð er vestan stormi 18-25 m/s og búast má við snörpum hviðum sem gætu farið yfir 30 m/s staðbundið. Við Breiðafjörð verður viðvörun í gildi frá kl. 14:00 til 20:00 og er einnig spáð…Lesa meira

true

Kap II á netaveiðum frá Grundarfirði

Um miðjan dag í gær var áhöfnin á Kap II VE-7 að leysa landfestar í Grundarfjarðarhöfn og áhöfnin að gera klárt til að fara út og leggja netin eftir vestan-bræluna í vikulokin. Þetta er fjórða vertíðin sem Kap II rær með net frá Grundarfirði, er skipið búið að landa þrisvar sinnum samkvæmt vef Fiskistofu og…Lesa meira

true

Snæfell nálgast toppbaráttuna eftir sigur á Stjörnunni

Snæfell gerði góða ferð í Garðabæinn í 1. deild kvenna á laugardaginn þegar liðið lagði Stjörnuna að velli, lokatölur 52:66 fyrir Snæfelli. Besti leikmaður Snæfells í vetur, Sianni Martin, er komin í þriggja leikja bann og var því ekki með gegn Stjörnunni en það virtist ekki koma að sök. Fyrsti leikhluti var hnífjafn, Snæfell var…Lesa meira

true

Auglýsa eftir fólki til að sitja í byggingarnefnd nýrra íþróttamannvirkja

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur formlega eyrnamerkt 250 milljónir króna til byggingar íþróttamannvirkja í Búðardal á þessu ári, en alls er áætlað að verkefnið kosti 950 milljónir á byggingartímanum til ársins 2024. Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar nýverið var tekin umræða um skipun byggingarnefndar mannvirkjanna. Fyrir fundinum lá tillaga um að þessi stjórn yrði skipuð byggðarráði, varaoddvita og…Lesa meira