{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi við Faxaflóa frá kl. 10:00 til 18:00 í dag en þá er spáð vestan 18-28 m/s og vindhviðum sem gætu farið staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má gera ráð fyrir skúrum og síðar éljum með lélegu skyggni versnandi akstursskilyrðum. Á meðan viðvörunin er í gildi verður varasamt ferðaveður og er fólk hvatt til að tryggja lausamuni. Hvassast verður á Reykjanesinu og má þar líka búast við miklum áhlaðanda.",
"innerBlocks": []
}