Heiðrún opnar sýninguna Hugarflug á Bókasafni Akraness
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á Bókasafni Akraness hefur verið opnuð málverkasýning Heiðrúnar Þorgeirsdóttur. Heiðrún er fædd árið 1940 á Akranesi og bjó hún þar á unglingsárum sínum. Afi hennar var Árni Böðvarsson (1888-1977) ljósmyndari og sparisjóðsstjóri. Heiðrún hefur haldið sýningar víða um land og sýnt bæði glerlistaverk og málverk. Glerlistaverk sín seldi hún í mörg ár í Gallerí List og víðar. Heiðrún hefur tvisvar áður sýnt á Akranesi og þá í Listasetrinu Kirkjuhvoli við Merkigerði. Einkasýning árið 1998 þar sem hún sýndi glerverk og samsýning með fleiri listamönnum árið 2009, þá sýndi hún olíuverk.\r\n\r\nAð þessu sinni heldur hún sýningu í Bókasafni Akraness og sýnir blek- og vatnslitamyndir. Myndir af blómum og landslagi úr hugarflugi hennar. Sýningin er opin alla virka daga kl. 10 - 18 og á laugardögum kl. 11 - 14 og stendur yfir til og með 23. febrúar. Allar myndirnar eru til sölu.\r\n\r\nSýning Heiðrúnar er fyrsta sýning ársins á veggjum safnsins, en vakin er athygli á því að bókasafnið er að auglýsa eftir umsóknum fyrir sýningarárið 2022 og er áhugasömum bent á sækja um, umsóknareyðublað er á vefsíðu safnsins, https://www.bokasafnakraness.is/. undir flipanum Umsóknir. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar. Nánari upplýsingar í síma 433 1200.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}
Heiðrún opnar sýninguna Hugarflug á Bókasafni Akraness - Skessuhorn