Önnur lægð væntanleg á morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gul veðurviðvörun er við Faxaflóa og Breiðafjörð á morgun. Við Faxaflóa verður viðvörunin í gildi á milli kl. 12:00 og 21:00. Spáð er vestan stormi 18-25 m/s og búast má við snörpum hviðum sem gætu farið yfir 30 m/s staðbundið. Við Breiðafjörð verður viðvörun í gildi frá kl. 14:00 til 20:00 og er einnig spáð vestan stormi 18-25 m/s á því svæði. Einnig má búast þar við snörpum vindhviðum sem gætu farið yfir 35 m/s, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi. Veðrið verður varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og gera má ráð fyrir samgöngutruflunum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum.",
  "innerBlocks": []
}
Önnur lægð væntanleg á morgun - Skessuhorn