
Á fallegum vordegi í Reyhólasveit. Ljósm. úr safni/ Steina Matt.
Tóku sýni úr Kambsfénu við leit að geninu dýrmæta
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Áhugafólk um sauðfjárrækt bíður nú spennt niðurstaðna úr rannsóknum á sýnum sem tekin voru undir lok síðustu viku úr fénu á Kambi í Reykhólasveit. Rannsakað verður hvort afkomendur kindar frá Kambi beri hið mikilvæga gen, ARR-arfgerð, sem verndar kindur fyrir riðu.\r\n\r\nGenið sem um ræðir fannst í fé frá bænum Þernunesi við Reyðarfjörð. Féð á það sameiginlegt að vera út af gimbur frá Karli Kristjánssyni bónda á Kambi, en gimbrina seldi hann austur að Þernunesi árið 2013. Ekki er hægt að fullyrða að þessi verndandi arfgerð sé frá Kambi komin, er þess nú freistað að fá úr því skorið. Hinn möguleikinn er sá að genin komi frá upprunalega Þernunesfénu en þar hefur aldrei farið fram niðurskurður vegna riðu eða annarra sauðfjársjúkdóma. Karl á Kambi upplýsir á Facebook síðu sinni að tekin hafi verið 45 sýni úr ánum hans fyrir helgi sem send voru til rannsóknar í Þýskalandi. Niðurstöðu er svo að vænta um mánaðamótin. Ef eitthvað af þessari arfgerð finnst í Kambsfénu, segir Karl, að mjög líklegt sé að arfgerðin finnist víða á svæðinu.\r\n\r\nÍ frétt RUV um ARR arfgerðina sem fannst á Þernunesi segir að gripirnir sex sem fundust á bænum séu aðeins með arfgerðina á öðrum litningi. Það veiti talsverða vörn gegn riðu en þýðir einnig að aðeins helmingur afkomenda þeirra erfir arfgerðina. „Sem stendur er aðeins vitað um einn hrút með arfgerðina, Gimstein frá Þernunesi, en fleiri gætu fundist í hópi ættingja hans eða á meðal 15-20 þúsund gripa sem greindir verða í stórátaki í vetur. Vonir standa til að undan Gimsteini komi fleiri hrútar í vor sem gæti nýst til undaneldis á næsta ári. Nú liggja menn menn á bæn um að Gimsteini heilsist vel og að hann komist á sæðingarstöð næsta haust,“ segir í umfjöllun RUV.",
"innerBlocks": []
}