{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ný verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands á tryggingum sýnir að mikill munur getur verið á verði á tryggingum og eru neytendur hvattir til að fá tilboð frá ólíkum félögum. Könnunin sýnir að verðlagning tryggingafélaganna er misjöfn eftir tryggingategundum og að minni munur sé á tilboðum tryggingafélaganna ef þau innihalda margar ólíkar tryggingar. Fjórir einstaklingar leituðu eftir tilboðum í „tryggingapakka“ hjá tryggingafélögunum fjórum þar sem leitað var eftir tilboðum í sambærilegar tryggingar og viðkomandi var þegar með. Þá óskuðu tveir einstaklingar eftir tilboðum í bílatryggingar eingöngu.\r\n\r\n„Vörður var með lægsta tilboð í alla stærri tryggingapakka sem innihéldu margar tryggingar. Mest var 37% eða 88.904 kr. munur á hæsta og lægsta tilboði tryggingafélaganna í tryggingapakka einstaklings sem innihélt m.a. bílatryggingu, fjölskyldu- og heimilistryggingu og húseigendatryggingu. Vörður var með lægsta tilboðið en TM það hæsta. Vörður var með lægsta tilboðið í alla fjóra tryggingapakkana. Mest var 51% eða 126.545 kr. verðmunur á hæsta og lægsta tilboði tryggingafélaganna í lögbundnar ökutækjatryggingar auk bílrúðu- og kaskótryggingar, þar sem VÍS var með lægsta tilboðið en TM með hæsta tilboðið. Einhver munur getur verið á tryggingum milli tryggingafélaganna vegna ólíkra skilmála og mun á tryggingafjárhæðum sem voru þó stilltar af svo þær væru sem næst því að vera eins,“ segir í frétt verðlagseftirlits ASÍ.\r\n\r\n<strong>Verð á tryggingum hækkar</strong>\r\n\r\nVerð á tryggingum hefur hækkað umfram hækkanir á vísitölu neysluverðs á síðustu tveimur árum þrátt fyrir mikinn hagnað tryggingafélaganna og háar arðgreiðslur. Á einu ári, frá desember 2020 til desember 2021 hækkuðu tryggingar um 7,4% og bílatryggingar um 8,3% samanborið við 5,1% hækkun á vísitölu neysluverðs. Á tveimur árum nemur verðhækkun á tryggingum 10,9% borið saman við 8,9% hækkun vísitölu neysluverðs á sama tíma.\r\n\r\n„Verðlagseftirlit ASÍ hvetur neytendur til að óska eftir tilboðum í sínar tryggingar með reglulegu millibili og leita þannig leiða til að lækka útgjöld í tryggingar sem geta verið há. Samkvæmt lögum geta neytendur sagt upp tryggingum sínum með eins mánaðar fyrirvara vilji þeir skipta um tryggingafélag,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.",
"innerBlocks": []
}
Vörður með lægsta tilboð í tryggingar - Skessuhorn