
Búðardalur. Ljósm. sm.
Auglýsa eftir fólki til að sitja í byggingarnefnd nýrra íþróttamannvirkja
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur formlega eyrnamerkt 250 milljónir króna til byggingar íþróttamannvirkja í Búðardal á þessu ári, en alls er áætlað að verkefnið kosti 950 milljónir á byggingartímanum til ársins 2024. Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar nýverið var tekin umræða um skipun byggingarnefndar mannvirkjanna. Fyrir fundinum lá tillaga um að þessi stjórn yrði skipuð byggðarráði, varaoddvita og sveitarstjóra. Nokkur umræða fór fram á fundinum og komu fram ýmis sjónarmið um skipan nefndarinnar og aðgang hennar að sérfræðiþekkingu. Einnig var rætt um kostnað við nefndina, sem talinn er verða rúmlega þrjár milljónir. Tillaga var lögð fram um að sveitarfélagið auglýsti eftir áhugasömum einstaklingum í nefndina og hún yrði síðan skipuð á næsta sveitarstjórnarfundi. Var tillagan samþykkt samhljóða. Þessi aðferð við skipan í nefndir er nokkuð nýstárleg og gefur þeim íbúum sem hafa brennandi áhuga á málefninu tækifæri til að leggja verkefninu starfskrafta sína.\r\n\r\nÍ samtali við Kristján Sturluson sveitarstjóra kom fram að meðal þess sem nefndin muni þurfa að fjalla um sé ferill verkefnisins, m.a. hvort verkið verði boðið út í alútboði, þar sem verktakinn myndi vinna allt frá hönnun og efnisvali til framkvæmdar, eða hvort verkið verði brotið niður í smærri einingar, sem boðnar verði út sitt í hvoru lagi í smærri áföngum. Hann nefndi jafnframt að ekki hafi verið tekin endanleg ákvörðun um fjölda nefndarmanna, en það mun verða meðal þess sem sveitarstjórn tekur afstöðu til á næsta fundi sínum, þar sem nefndin verður skipuð.\r\n\r\n<strong>Fjárhagslegt svigrúm</strong>\r\n\r\nEyjólfur Ingvi Bjarnason, oddviti sveitarstjórnar, sagði í samtali við Skessuhorn að ætlunin væri að fara í jarðvegsvinnu á þessu ári og vonast sveitarstjórn til þess að hægt verði að taka mannvirkin í notkun um mitt ár 2024. Spurður hvort sveitarfélagið hafi burði til að fara í svo stóra framkvæmd segir Eyjólfur svo vera. Framkvæmdatímanum verður skipt niður í nokkur ár og ætlar sveitarfélagið að taka lán eins og þarf hverju sinni. Hann segir sveitarfélagið eiga sjóði sem gengið verður á nú til að byrja með en lánasafn sveitarfélagsins er að klárast á næstu einu til tveimur árum og skapast þá skilyrði til að taka ný lán. „Þetta er bara eitthvað sem þarf að gera ef við viljum að þetta svæði verði samkeppnishæft,“ segir Eyjólfur.\r\n\r\nLengi hefur staðið til að byggja íþróttamannvirki í Búðardal og oft hefur það verið rætt að fyrst þyrfti að selja Lauga í Sælingsdal. Eyjólfur segir það þó ekki lengur vera forsendu fyrir því að hægt verði að hefja framkvæmdir. Staðan sé þannig í dag að rými sé að myndast fyrir frekari lántöku og því geti sveitarfélagið farið í framkvæmdirnar óháð því hvort takist að selja Lauga. „Laugar eru enn á sölu og við auglýsum alltaf annað slagið. Við fundum þó nokkurn áhuga á að kaupa Laugar í kringum áramótin 2019-2020 en svo kom þessi veira og þá höfum við bara séð undir hælana á öllum. Það halda allir að sér höndum eins og staðan er í dag,“ segir Eyjólfur Ingvi að endingu.",
"innerBlocks": []
}