Fréttir

true

Sundabraut leiðir af sér 200 milljarða króna ábata fyrir samfélagið

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tóku í gær formlega við óháðri félagshagfræðilegri greiningu á lagningu Sundabrautar og skilagrein starfshóps Vegagerðarinnar um lagningu Sundabrautar. Greiningin leiðir í ljós 186-238 milljarða króna ábata fyrir samfélagið eftir útfærslu Sundabrautar með Sundabrú eða jarðgöngum. Mestur ábati felst í minni akstri, útblæstri og mengun og styttri…Lesa meira

true

Unglingadeild stofnuð hjá Brák

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi ætlar í næsta mánuði að fara af stað með nýja deild fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára, en frá þessu er greint á Facebook síðu sveitarinnar. Í unglingadeildinni fá meðlimir að kynnast ýmsum störfum björgunarsveita auk þess sem veitt verður fræðsla um útivist allan ársins hring og farið yfir öryggismál og…Lesa meira

true

Færð mun spillast á fjallvegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við að færð á vegum gæti spillst samhliða vestan lægð sem gengur yfir landið í dag. „Norður í land og vestur á firði versnar veður síðdegis. Það verða 20-24 m/s, hríðarveður um tíma með blindu. Þetta á m.a. við á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku frá því upp úr hádegi í…Lesa meira

true

Riða greindist í skimunarsýni frá Vatnsnesi

Fyrir skömmu barst Matvælastofnun tilkynning frá Tilraunastöð HÍ að Keldum um að sýni hafi reynst jákvætt m.t.t. riðu. Sauðfjárbúskapur var aflagður á bænum í haust, aðeins er því um þrif og sótthreinsun að ræða. Á hverju hausti er tekinn fjöldi sýna úr fé sem sent er til slátrunar og þau rannsökuð með tilliti til riðu.…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun við Faxaflóa

Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi við Faxaflóa frá kl. 10:00 til 18:00 í dag en þá er spáð vestan 18-28 m/s og vindhviðum sem gætu farið staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má gera ráð fyrir skúrum og síðar éljum með lélegu skyggni versnandi akstursskilyrðum. Á meðan viðvörunin er í gildi verður varasamt ferðaveður og er…Lesa meira

true

Heiðrún opnar sýninguna Hugarflug á Bókasafni Akraness

Á Bókasafni Akraness hefur verið opnuð málverkasýning Heiðrúnar Þorgeirsdóttur. Heiðrún er fædd árið 1940 á Akranesi og bjó hún þar á unglingsárum sínum. Afi hennar var Árni Böðvarsson (1888-1977) ljósmyndari og sparisjóðsstjóri. Heiðrún hefur haldið sýningar víða um land og sýnt bæði glerlistaverk og málverk. Glerlistaverk sín seldi hún í mörg ár í Gallerí List…Lesa meira

true

Vörður með lægsta tilboð í tryggingar

Ný verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands á tryggingum sýnir að mikill munur getur verið á verði á tryggingum og eru neytendur hvattir til að fá tilboð frá ólíkum félögum. Könnunin sýnir að verðlagning tryggingafélaganna er misjöfn eftir tryggingategundum og að minni munur sé á tilboðum tryggingafélaganna ef þau innihalda margar ólíkar tryggingar. Fjórir einstaklingar leituðu eftir…Lesa meira

true

Tóku sýni úr Kambsfénu við leit að geninu dýrmæta

Áhugafólk um sauðfjárrækt bíður nú spennt niðurstaðna úr rannsóknum á sýnum sem tekin voru undir lok síðustu viku úr fénu á Kambi í Reykhólasveit. Rannsakað verður hvort afkomendur kindar frá Kambi beri hið mikilvæga gen, ARR-arfgerð, sem verndar kindur fyrir riðu. Genið sem um ræðir fannst í fé frá bænum Þernunesi við Reyðarfjörð. Féð á…Lesa meira

true

Strákarnir mæta Króatíu í dag

Strákarnir okkar í íslenska karlalandsliðinu í handbolta mæta liði Króata á EM í Búdapest klukkan 14:30 í dag. Danir eru nú á toppi riðilsins með 6 stig en Frakkland og Ísland eru jöfn með 4 stig. Króatía er eina liðið í riðlinum án stiga og getur því ekki tryggt sér sæti í undanúrslitum en Holland…Lesa meira

true

Önnur lægð væntanleg á morgun

Gul veðurviðvörun er við Faxaflóa og Breiðafjörð á morgun. Við Faxaflóa verður viðvörunin í gildi á milli kl. 12:00 og 21:00. Spáð er vestan stormi 18-25 m/s og búast má við snörpum hviðum sem gætu farið yfir 30 m/s staðbundið. Við Breiðafjörð verður viðvörun í gildi frá kl. 14:00 til 20:00 og er einnig spáð…Lesa meira