
Meðlimir í unglingadeild Björgunarsveitarinnar Brákar munu fá að kynnast ýmsum störfum sveitarinnar, meðal annars fjallamennsku. Ljósm. úr safni
Unglingadeild stofnuð hjá Brák
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi ætlar í næsta mánuði að fara af stað með nýja deild fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára, en frá þessu er greint á Facebook síðu sveitarinnar. Í unglingadeildinni fá meðlimir að kynnast ýmsum störfum björgunarsveita auk þess sem veitt verður fræðsla um útivist allan ársins hring og farið yfir öryggismál og útbúnað og búnaður prófaður og margt fleira. Ætlunin er að kynna ungmenni fyrir klifri, skyndihjálp, leitartækni og fleiru. Skráning um þátttöku í unglingadeild skal send á netfangið <a href=\"mailto:unglingadeildbrakar@gmail.com\">unglingadeildbrakar@gmail.com</a> fyrir föstudaginn 28. janúar.",
"innerBlocks": []
}