Brú yfir sundin er mun hagkvæmari kostur en jarðgöng.

Sundabraut leiðir af sér 200 milljarða króna ábata fyrir samfélagið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tóku í gær formlega við óháðri félagshagfræðilegri greiningu á lagningu Sundabrautar og skilagrein starfshóps Vegagerðarinnar um lagningu Sundabrautar. Greiningin leiðir í ljós 186-238 milljarða króna ábata fyrir samfélagið eftir útfærslu Sundabrautar með Sundabrú eða jarðgöngum. Mestur ábati felst í minni akstri, útblæstri og mengun og styttri ferðatíma vegfarenda vegna styttri leiða til og frá höfuðborgarsvæðinu. Heildarakstur á höfuðborgarsvæðinu gæti minnkað um 150 þúsund km á hverjum sólarhring við opnun Sundabrautar. „Næstu skref eru að hefja undirbúning á umhverfismati, víðtæku samráðsferli og nauðsynlegum breytingum á aðalskipulagi en miðað er við að Sundabraut verði opnuð árið 2031,“ segir í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.\r\n\r\nSkýrsla starfshóps um lagningu Sundabrautar var kynnt í febrúar á síðasta ári. Niðurstaða hópsins var að Sundabrú væri hagkvæmari kostur en jarðgöng (Sundagöng). Vóg þar þyngst að framkvæmdakostnaður við brúarleið er lægri auk þess sem brú hentar betur fyrir alla ferðamáta og almenningssamgöngur. Ríki og borg undirrituðu yfirlýsingu í júlí 2021 um lagningu Sundabrautar þar sem sammælst var um að Sundabraut yrði lögð alla leið á Kjalarnes í einni framkvæmd og að brautin yrði tekin í notkun árið 2031. Í öðrum áfanga fékk starfshópurinn verkfræðistofuna Mannvit og danska ráðgjafafyrirtækið Cowi til að vinna félagshagfræðilega greiningu sem nú hefur verið afhent.",
  "innerBlocks": []
}
Sundabraut leiðir af sér 200 milljarða króna ábata fyrir samfélagið - Skessuhorn