Fréttir

true

Varasamt að aka fyrir Hafnarfjall í dag

Í dag verður austanátt við suðvestanvert landið, 15-23 m/s á Faxaflóasvæðinu. Vegagerðin bendir á að búast megi við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s. Við þær aðstæður er varasamt að vera á ferðinni með ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Hviðurnar í austanáttinni í dag verða snarpastara á Kjalarnesi og við…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris á sunnudag

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt sunnan- og suðvestanvert landið á morgun sunnudag. Spáð er austan 15-23 m/s, en hægari norðantil við Faxaflóa. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s, einkum á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Varasamt að vera á ferð á ökutækjum sem sem taka á sig…Lesa meira

true

Kór Átthagafélags Strandamanna í kvöldmessu á Akranesi

Annað kvöld, sunnudaginn 13. nóvember kl. 20:00 verður kvöldmessa í Akraneskirkju. Kristniboðsdagsins minnst. Kór Átthagafélags Strandamanna, sem telur liðlega fjörutíu manns, sækir Skagamenn heim og syngur í kvöldmessunni í Akraneskirkju. Stjórnandi kórsins er Ágota Joó en Hilmar Örn organisti leikur undir. „Gaman væri að Akurnesingar tækju vel á móti kórnum og fjölmenntu til messu komandi…Lesa meira

true

Matvælastofnun og lögregla biðla til almennings

Lögreglunni hefur borist tilkynning um að hópur fólks stefni á björgunaraðgerðir á Nýjabæ í Borgarfirði á morgun laugardag, 12. nóvember. Eins og fram kom í tilkynningu Matvælastofnunar frá því fyrr í dag er málið í vinnslu. “Fyrir liggur að Matvælastofnun og lögreglan á Vesturlandi verða á staðnum á morgun að vinna að velferð dýranna á…Lesa meira

true

Sveitarsjóður gerður upp með tapi næstu fimm árin

Fulltrúi minnihlutans telur fjárfestingaáætlun úr takti við getu sveitarsjóðs Sveitarstjórn Borgarbyggðar tók á fundi sínum í gær til afgreiðslu drög að fjárhagsáætlun fyrir 2023 og fimm ára áætlun. Samþykkt var að útsvar verður óbreytt, þ.e. 14,52%. Í rekstraráætlun er gert ráð fyrir tapi öll árin sem áætlunin nær yfir, en minnstu tapi á næsta ári,…Lesa meira

true

Árgangamót ÍA í Akraneshöllinni

Árgangamót ÍA í knattspyrnu verður á morgun í Akraneshöllinni eftir þriggja ára hlé en mótið hefur ekki verið haldið síðan 2019 vegna faraldursins. Húsið opnar klukkan 12.30 og hefst keppni klukkan 13. Þeir sem taka þátt er skipt í tvo aldurshópa, karlar og konur 30 ára og eldri keppa saman og síðan 40 ára og…Lesa meira

true

Skallagrímur með þriðja tapið í röð

Skallagrímur tók á móti liði Selfoss í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrsta leikhluta og munurinn aldrei meiri en fjögur stig milli liðanna, staðan 31:32 gestunum í vil. Selfoss hóf leik af miklum krafti í öðrum leikhluta og…Lesa meira

true

Háleynilegur jólasveinaskiptimarkaður í Stykkishólmi – börn stranglega bönnuð

Á mánudaginn 14. nóvember, heldur Amtsbókasafnið í Stykkishólmi skiptimarkað fyrir jólasveina klukkan 20-21:30. Jólasveinar og aðstoðarmenn þeirra geta á markaðinum skipts á skógjöfum. Koma má með dót sem ekki er lengur notað á markaðinn en bókasafnið býr enn að góðum lager frá sama viðburði í fyrra. Öll eru velkomin en ekki þarf sérstaklega að koma…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir að bæjarsjóður skili áfram jákvæðri niðurstöðu

Fasteignaskattur óbreyttur sem þýðir hækkun gjalda Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar var með til fyrri umræðu fjárhagsáætlun næsta árs og þriggja ára áætlun vegna áranna 2024 – 2026 á fundi sínum á þriðjudaginn. Á fundinum gerði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri grein fyrir helstu hagstærðum og áhersluþáttum í rekstri bæjarfélagsins. Fór hann vítt yfir sviðið hvað snertir t.d. fjárfestingar,…Lesa meira