
Bergþór Ægir skoraði ellefu stig á móti Selfossi. Ljósm. glh
Skallagrímur með þriðja tapið í röð
Skallagrímur tók á móti liði Selfoss í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrsta leikhluta og munurinn aldrei meiri en fjögur stig milli liðanna, staðan 31:32 gestunum í vil. Selfoss hóf leik af miklum krafti í öðrum leikhluta og skoraði ellefu stig gegn aðeins einu stigi heimamanna, staðan 32:43 eftir aðeins þriggja mínútna leik. Skallagrímur náði síðan að minnka muninn í fimm stig þegar tvær mínútur voru í hálfleik en Selfoss setti niður síðustu sex stigin og staðan í hálfleikshléinu góð fyrir gestina, 45:56.