
Austan hvassviðri gekk yfir vestanvert landið í gær. Veðurstofan hafði fyrir fram gefið út gula viðvörun vegna þessa þar sem meðal annars var varað við akstri fyrir Hafnarfjall þar sem vindur stóð beint af fjallinu. Ekki er vitað um teljandi tjón utan þess að í Hálsasveit í Borgarfirði gekk síðdegis á með mjög öflugum hviðum.…Lesa meira








