Fréttir

true

Brák afhent fjölnota björgunartæki til frjálsra afnota

Nýverið hljóp á snærið hjá Björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi. Sveitinni var afhent til frjálsra afnota fjölnota björgunartæki sem gefur, að sögn Elínar Matthildar Kristinsdóttur formanns sveitarinnar, mikla möguleika til leitar og björgunar við erfiðustu aðstæður. Um er að ræða „All terrain“ snjóbíl af gerðinni Hägglund gerður hefur verið upp frá A til Ö. „Þessi bíll…Lesa meira

true

Snæfell vann sinn sjöunda sigur í röð

KR og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Meistaravöllum í Vesturbænum. Fyrir leik voru liðin jöfn með tólf stig í deildinni ásamt Þór Akureyri í 2. til 4. sæti og því um toppslag að ræða. Það skildi lítið á milli liðanna í fyrsta leikhluta, eftir…Lesa meira

true

Þveginn og þurrkaður þegar þarf

Tindur, sem er búsettur á Akranesi, er hundur af Samójed tegund, mongólskir að uppruna. Hlutverk þessara hunda var að starfa fyrir hreindýrahirðingja, notaðir til að gæta dýranna og draga sleða ásamt því að vera sérlega góðir félagar. Þá höfðu þeir það hlutverk að veita börnunum hlýju í hirðingatjöldunum, enda feldur þeirra einkar hlýr og geðslag…Lesa meira

true

Vetrarríki spáð á fjallvegum fyrir vestan

Vegagerðin bendir á að á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum er útlit fyrir krapa á vegum seinnipartinn í dag, en kólnar með hríð í kvöld og í nótt. Á morgun verður norðaustan 17-22 m/s og snjóbylur á þessum sömu heiðavegum. Skafrenningur verður og blint á Klettshálsi og eins hríð á Gemlufallsheiði.  Lesa meira

true

Bjóða upp á fría blóðsykursmælingu á Akranesi á laugardaginn

Laugardaginn 12. nóvember nk. munu Lionsklúbbur Akraness og Félag sykursjúkra bjóða fólki upp á fría blóðsykursmælingu á Akranesi. Mælingin fer fram í verslanamiðstöðinni að Smiðjuvöllum 32 (við Bónus) á laugardaginn milli klukkan 14.00 og 16.00. Apótek Vesturlands styrkir félögin og leggur til mælingarbúnað. Sykursýki (diabetes mellitus) er efnaskiptasjúkdómur sem einkennist af of háum blóðsykri, sem…Lesa meira

true

Heima-Skagi var vel heppnaður – MYNDASYRPA

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram á laugardagskvöldið í gamla bænum á Akranesi og mátti sjá fólk á röltinu út um allan neðri Skagann langt fram á kvöld. Undirritaður var einn af þeim fjölmörgu sem tóku röltið þetta kvöld og fyrsti viðkomustaður var Blikksmiðja Guðmundar þar sem rokksveitin Vintage Caravan sem var stofnuð árið 2006 réð ríkjum.…Lesa meira

true

Boðið verður upp á blóðsykursmælingu í Borgarnesi í næstu viku

Boðið verður upp á blóðsykursmælingar í Borgarnesi í næstu viku. Hún er á vegum Lionsklúbbsins Öglu. Mælingin verður í fjóra daga, 15.-18. nóvember, á milli klukkan 11 og 12 og svo síðdegis frá klukkan 16 til 18 í Hyrnutorgi. „Við hvetjum sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri og huga vel að heilsunni,“ segir…Lesa meira

true

Hvetja bæjaryfirvöld til að glata ekki sterkri ímynd

„Aðstaðan á Jaðarsbökkum mætir ekki kröfum. Til þess að stuðla að áframhaldandi sterkri ímynd Akraness sem íþrótta- og knattspyrnubæjar er bæjarfélaginu og íþróttahreyfingunni brýnt að sameinast um bætta aðstöðu knattspyrnufélagsins á Jaðarsbökkum. Að glata sterkri ímynd og öflugu æskulýðs- og afreksstarfi er ekki valkostur.“ Þetta eru lokaorð í aðsendri grein í Skessuhorni í dag sem…Lesa meira

true

Hófu aðaltvímenning BB

Síðastliðið mánudagskvöld var spiluð fyrsta umferðin af fjórum í aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Þátttaka var ágæt, eða 17 spilapör, og komu gestir meðal annars frá Hólmavík, Borgarnesi og Akranesi. Fyrirkomulag mótsins er að þrjú bestu kvöld hvers pars gilda til úrslita. Öllum er því velkomið að mæta og taka þátt, þótt þeir hafi ekki…Lesa meira

true

Drengurinn með ljáinn kom út í gær

Í gær kom út ný bók eftir Ævar Þór Benediktsson sem ber heitið Drengurinn með ljáinn. Bókin er gefin út af Forlaginu og er þrítugasta bók höfundar. „Þetta er barna- og unglingabók um dauðann og hvað hann getur verið hræðilegur en líka fallegur á sama tíma,“ segir Ævar í samtali við Skessuhorn. Myndheimur bókarinnar er…Lesa meira