
Heima-Skagi var vel heppnaður – MYNDASYRPA
Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram á laugardagskvöldið í gamla bænum á Akranesi og mátti sjá fólk á röltinu út um allan neðri Skagann langt fram á kvöld. Undirritaður var einn af þeim fjölmörgu sem tóku röltið þetta kvöld og fyrsti viðkomustaður var Blikksmiðja Guðmundar þar sem rokksveitin Vintage Caravan sem var stofnuð árið 2006 réð ríkjum. Það er óhætt að segja að kraftur hafi verið í þríeykinu en tónlistin þeirra er blanda af klassísku rokki, frumþungarokki og framsæknu rokki. Gárungarnir á staðnum kölluðu þetta blikkmetal rokk en eftir nokkuð lög og smá svekk að hafa ekki heyrt lagið On The Run sem er þeirra þekktasta lag var haldið í Gamla Iðnskólann þar sem Skagasveitin Tíbrá spilaði mest instrumental lög. Þeir fengu þó söngkonuna Brynju Valdimars til að flytja með þeim lagið Street Life sem er þekktast í flutningi Randy Crawford. Ekki heyrði ég uppáhaldslagið mitt með Tíbrá sem heitir Peningar af plötunni Í svart-hvítu sem út kom árið 1982 en maður fær ekki allt í lífinu. Næst var ferðinni heitið á Vitateig 2 þar sem Herbert Guðmundsson hélt uppi stuðinu og gerði það ágætlega þó nokkuð væri um endurtekningar á lögum á þeim bænum en gestir kipptu sér ekki mikið upp við það enda kann Herbert þá iðju að skemmta fólki.