Fréttir

true

Veisla fyrir bókaorma

Bókamessa verður haldin að Háaleitisbraut 66 í Reykjavík, í safnaðarheimili Grensáskirkju í Reykjavík, á morgun, laugardaginn 5. nóvember frá kl. 12-18. Þar verða bæði splunkunýjar jólabækur og margskonar rarítet fyrri ára á kjarapöllum. Alls verða 12 nýjar bækur kynntar með upplestri en auk þess kemur valkyrjuhópurinn Kvæðakonan góða fram og kynnir væntanlega endurútgáfu á Íslenskri matarhefð…Lesa meira

true

MB fær viðurkenningu fyrir framsækna endurskoðun námskrár

Upplýst var í kvöld að Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna fyrir framsækna endurskoðun á námskrá skólans. Það var Gerður Kristný rithöfundur sem afhenti fulltrúum skólans verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Með Braga Þór Svavarssyni skólameistara voru í för þau Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari, Signý Óskarsdóttir verkefnastjóri skólaþróunar, Helgi Haukur…Lesa meira

true

Elstu börnin á Vallarseli syngja Ávaxtakörfuna – MYNDBÖND

Elstu börnin á leikskólanum Vallarseli á Akranesi héldu klukkan 14 í dag tónleika í Tónbergi á Akranesi. Þar fluttu börnin lög úr Ávaxtakörfunni. Tónleikarnir voru vel sóttir og stóðu allir sig reglulega vel. Þá voru blásturshljóðfærin dregin upp í flutningi lagsins Immi best.Lesa meira

true

Nýr vefur að líta dagsins ljós

Í þessari viku hefur verið unnið að uppfærslu vefjar Skessuhorns. Útlit hans er að mestu það sama og verður svo fyrst um sinn. Vefurinn hefur nú verið færður í annað umsjónarkerfi og unnið við ýmsa forritun. Meðal annars ættu lesendur að finna hraðari vef þegar flakkað er milli síðna. Nú þurfum við að biðja góða…Lesa meira

true

Hrekkjavökuganga í Stykkishólmi

Vetrarfrí var í grunnskólanum í Stykkishólmi síðastliðinn mánudag þegar hrekkjavaka var haldin um nær allan heim og var því ákveðið að fresta henni í Stykkishólmi þar sem mörg börn voru ekki heima. Miðvikudaginn 2. nóvember stóð foreldrafélag Grunnskólans svo fyrir hrekkjavökugöngu í samstarfi við ungmenni í félagsmiðstöðinni og Norska húsið en því hafði einmitt verið…Lesa meira

true

Ensku húsin skipta um eigendur

Margir kannast við Ensku húsin sem standa við Langá á Mýrum um 7 kílómetra vestur af Borgarnesi. Síðastliðin sextíu ár hafa þau verið í eigu fjölskyldu Ragnheiðar G. Jóhannesdóttur og eiginmanns hennar Stefáns Ólafssonar á Litlu-Brekku. En nú hefur orðið breyting á því og Eyja fjárfestingarfélag, sem er í eigu Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar…Lesa meira

true

Arnór Smárason skrifar undir tveggja ára samning við ÍA

Knattspyrnumaðurinn Arnór Smárason hefur ákveðið að ganga til liðs við Skagamenn en Arnór kemur til ÍA frá Val þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö tímabil. Arnór er uppalinn hjá ÍA en lék aldrei með meistaraflokki ÍA á yngri árum og mun því loksins leika með uppeldisfélaginu en hann er 34 ára gamall. ÍA féll…Lesa meira

true

Árétting vegna auglýsingar kaupmanna um Vökudaga

Í Skessuhorni í vikunni var fyrir mistök endurbirt heilsíðuauglýsing frá kaupmönnum frá síðustu viku. Þar koma m.a. fram upplýsingar um ýmis tilboð og lengri opnun í nokkrum verslunum. Þrátt fyrir að auglýsingin sé merkt að gildi um þann tíma sem Vökudagar standa yfir, áttu þessar upplýsingar um tilboð og lengri opnunartíma við um síðustu helgi,…Lesa meira

true

Átthagafræðinámið í Snæfellsbæ hlýtur Íslensku menntaverðlaunin

Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær, 2. nóvember. Meðal þeirra verkefna sem tilnefnd höfðu verið til verðlauna í flokknum framúrskarandi þróunarverkefni var átthagafræðikennsla í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Skemmst er frá því að segja að skólinn hlaut Íslensku menntaverðlaunin 2022 í þeim flokki. Fern önnur menntaverðlaun voru afhent við sama tækifæri og…Lesa meira

true

Forsendur grisjunarverktaka í Dölum eru brostnar

Telja Skógræktina ekki hafa staðið við gerðan verksamning Dalamennirnir Jens Líndal og Guðmundur Geirsson fjárfestu vorið 2021 í tveimur skógarhöggsvélum og hófu rekstur þeirra. Forsenda þeirra kaupa var verksamningur fyrri eiganda við Skógræktina um grisjun í Þjóðskógum. Jens og Guðmundur skrifuðu undir slíkan samning við Skógræktina í júní 2021 en hann kveður á um að…Lesa meira