Fréttir

true

Hrekkjavaka í leik- og grunnskólum á Akranesi

Það var hrollur í blaðamanni Skessuhorns þegar hann kíkti í heimsókn í morgun í nokkra leik- og grunnskóla á Akranesi. Fyrst var ferðinni heitið í Brekkubæjarskóla, síðan á leikskólana Teigasel og Vallarsel og síðasti viðkomustaður var Grundaskóli. Alls konar verur voru á ferli en blaðamaður náði þó að smella nokkrum myndum af áður en hann…Lesa meira

true

Skagamenn stóðu sig vel á Extramóti SH

Liðna helgi kepptu 15 sundmenn frá Akranesi á Extramóti SH í Hafnarfirði en það mót er eitt það sterkasta sem haldið er hér á landi að hausti. Þar nýta sterkustu sundmenn landsins mótið til þess að undirbúa sig fyrir Íslandsmeistaramótið í lok nóvember. Alls komu 15 verðlaun heim með Skagamönnum að móti loknu, tvö gull,…Lesa meira

true

Ráðherra nýtti daginn vel í nýsköpunarsetrinu á Breið

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og vísindaráðherra kom í heimsókn á Breið nýsköpunarsetur á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Heimsókn hennar var hluti af verkefni um opnar skrifstofur. Þar var hún við störf í samvinnurýminu, kynnti sér starfsemina í húsinu og bauð upp á opna viðtalstíma. Áslaug Arna hitti fyrir fjölmarga aðila í samvinnurýminu, meðal annarra Hlédísi…Lesa meira

true

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á hádegi á morgun

Samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra hefst rjúpnaveiðitímabilið á morgun, 1. nóvember. Á þessari vertíð verður veiðin leyfð frá 1. nóvember – 4. desember. Heimilt er að veiða rjúpu frá og með föstudegi til og með þriðjudags, frá klukkan 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að…Lesa meira

true

Snæfell sló Breiðablik út úr VÍS bikar kvenna

Lið Snæfells úr Stykkishólmi mætti í gær liði Breiðabliks sem leikur í efstu deild í 16 liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Hólminum. Breiðablik skoraði fyrstu tvö stig leiksins en heimakonur svöruðu með átta stigum í röð og voru alls óhræddar við andstæðing sinn úr Subway deildinni. Um miðjan…Lesa meira

true

Styttist í kvikmyndahátíðina Northern Wave Film festival

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave Film Festival verður haldin hátíðleg í fjórtánda skipti á Snæfellsnesi helgina 11.-13. nóvember næstkomandi. Sýndar verða stuttmyndir hvaðanæva að úr heiminum auk íslenskra tónlistarmyndbanda. Nú má finna dagskrá hátíðarinnar á vefsíðu hennar. Sýningarnar fara fram í Frystiklefanum á Rifi annarsvegar og í sundlauginni í Ólafsvík hinsvegar. Einnig verða viðtöl tekin við…Lesa meira

true

Skinkuhornið hlaðvarp – Ævar Þór Benediktsson

Leikarinn og rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson er fæddur og uppalinn á Stað í Borgarfirði. Ævar hefur skrifað 30 bækur en flestar eru þær ætlaðar börnum og unglingum. Þá er hann líklega einna þekktastur sem Ævar vísindamaður en í samnefndum sjónvarpsþáttum kynnti hann vísindi fyrir börnum við góðar undirtektir. Gunnlaug ræddi við Ævar um æskuna, ferilinn…Lesa meira

true

Lífið á Laugum er nýtt hlaðvarp úr Dölum

Lífið á Laugum er nýtt hlaðvarp upprunnið í Dölunum um lífið á heimavistinni í Laugaskóla Sælingsdal. Á vef Dalabyggðar segir að hlaðvarpið sé í umsjón Sigrúnar Hönnu Sigurðardóttur og Kristínar Bjarkar Jónsdóttur sem ræða við fyrrum nemendur og starfsfólk skólans um tímann þeirra á Laugum. “Það er ýmislegt sem rifjast upp þegar hugurinn hvarflar aftur…Lesa meira

true

Gat uppgötvaðist á sjókví í Tálknafirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi síðastliðinn laugardag um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Laugardal í Tálknafirði. Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit og er viðgerð lokið. „Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið um 14 cm rifa á 9 m dýpi. Í þessari tilteknu kví voru 99.025 laxaseiði sem sett voru í kvínna 17. október sl.…Lesa meira

true

Skagamenn fallnir eftir sigur á FH

Það varð ljóst í gær að Skagamenn eru fallnir úr Bestu deildinni í knattspyrnu og leika á næsta ári í Lengjudeildinni eftir að hafa unnið sigur á FH í Kaplakrika í Hafnarfirði. ÍA hefur síðustu fjögur ár leikið í efstu deild en þurfa nú að sætta sig við fall. Í viðtali eftir leik sagði Jón…Lesa meira