
Sjókví. Ljósm. Vestfjarðastofa.
Gat uppgötvaðist á sjókví í Tálknafirði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi síðastliðinn laugardag um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Laugardal í Tálknafirði. Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit og er viðgerð lokið. „Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið um 14 cm rifa á 9 m dýpi. Í þessari tilteknu kví voru 99.025 laxaseiði sem sett voru í kvínna 17. október sl. og voru þau við útsetningu með meðalþyngd 105,6 gr. Neðansjávareftirlit var áður framkvæmt 16. október sl. og var nótarpoki þá heill. Matvælastofnun hefur fyrirskipað köfun í allar kvíar á eldissvæðinu sem um ræðir til að tryggja að ekki séu fleiri göt á öðrum kvíum og gengið úr skugga um að viðbragðsáætlunum hafi verið fylgt. Matvælastofnun hefur atvikið til meðferðar. Arnarlax hefur lagt út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað,“ segir í tilkynningu frá MAST.",
"innerBlocks": []
}