Ólafur Darri Ólafsson var heiðursgestur á hátíðinni í fyrra.

Styttist í kvikmyndahátíðina Northern Wave Film festival

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave Film Festival verður haldin hátíðleg í fjórtánda skipti á Snæfellsnesi helgina 11.-13. nóvember næstkomandi. Sýndar verða stuttmyndir hvaðanæva að úr heiminum auk íslenskra tónlistarmyndbanda. Nú má finna dagskrá hátíðarinnar á vefsíðu hennar. Sýningarnar fara fram í Frystiklefanum á Rifi annarsvegar og í sundlauginni í Ólafsvík hinsvegar. Einnig verða viðtöl tekin við valda leikstjóra eftir sýningar og boðið verður upp á „masterclassa“ með Einari Snorra kvikmyndagerðarmanni.\r\n\r\nÍ tengslum við hátíðina verður haldin tveggja daga vinnustofa fyrir norrænar kvikmyndagerðarkonur, 21 talsins. Löndin sem taka þátt eru Grænland, Færeyjar, Ísland, Svíþjóð, Noregur, Danmörk og Finnland og eru tveir þátttakendur frá hverju landi og einn leiðbeinandi. Verkefnið gengur út á að fagkonur leiðbeina þátttakendum að taka sín fyrstu skref í kvikmyndagerð og styrkja tengslanetið. Að auki verður boðið upp á sérstaka dagskrá fyrir börn þar sem barnamyndir verða sýndar í sundlauginni, stuttmyndanámskeið haldið með Þóreyju Mjallhvíti og hægt verður að föndra sín eigin kvikmyndaplaköt alla helgina.\r\n\r\nEkki verður rukkað inn á viðburði hátíðarinnar, en greiða þarf hefðbundið gjald í sundlaugina. Loks er minnt á tónleika Emmsjé Gauta sem einnig verða í Frystiklefanum á laugardagskvöldinu.\r\n\r\nDagskrá hátíðarinnar og nánar um Norrænar stelpur skjóta má finna á: <a href=\"https://northernwavefestival.com/\">https://northernwavefestival.com/</a>",
  "innerBlocks": []
}
Styttist í kvikmyndahátíðina Northern Wave Film festival - Skessuhorn