Hér er Áslaug Arna að kynna sér rannsóknir og starfsemi Running Tide. Ljósm. hg.

Ráðherra nýtti daginn vel í nýsköpunarsetrinu á Breið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og vísindaráðherra kom í heimsókn á Breið nýsköpunarsetur á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Heimsókn hennar var hluti af verkefni um opnar skrifstofur. Þar var hún við störf í samvinnurýminu, kynnti sér starfsemina í húsinu og bauð upp á opna viðtalstíma. Áslaug Arna hitti fyrir fjölmarga aðila í samvinnurýminu, meðal annarra Hlédísi Sveinsdóttir sem kynnti fyrir henni jólamatardagatalið sitt, Önnu Björk og Daníel hjá máltæknifyrirtækinu Grammatek og Sigrúnu Hauksdóttur hjá Capretto sem er frumkvöðlafyrirtæki í lyfjaiðnaði.\r\n\r\nKristeifur Brandssson hjá Íslandsbanka, Gísli Karlsson hjá Bláa Lóninu og Óli Valur Valsson hjá Sjóvá heilsuðu upp á Áslaugu í samvinnurýminu sem og Kristján Guðmundsson hjá Markaðsstofu Vesturlands og Anna Steinsen hjá Hótel Húsafelli. Heiðar Mar hjá Muninn Film fór yfir grósku í kvikmyndaðiðnaðinum og Steinar og Sigurgeir hjá Símenntunarðmiðstöð Vesturlands fóru yfir námsskrá vetursins en kennslustofa verður tilbúin í Breið nýsköpunarsetri um áramótin. Hjá KPMG tóku Hjálmur Hjálmsson og Helena Rós Sigurðardóttir vel á móti Áslaugu og fóru yfir áætlanir KPMG á næstunni.\r\n\r\nÞví næst fékk Áslaug að prófa þrívíddarprentara í fyrsta sinn þar sem hún bjó til forláta kanínu hjá þeim Ármanni Vilhjálmssyni og Unni Jónsdóttur og fékk svo kynningu á framleiðslufyrirtækinu TréArt sem er þar við hliðina. Því næst færði Áslaug sig yfir í blautrýmið og skoðaði Breið líftæknismiðju og hitti m.a. Sigríði Kristinsdóttur og fleiri sem eru að vinna að þara- og lífmassarannsóknum sem og rannsóknum á grjótkrabba. Þá tóku þeir Bergur Benediktsson og Þórður Bergsson hjá North Marine Ingredients við keflinu og sögðu Áslaugu frá rannsóknum og ensímvinnslu sinni sem mun fara á fullt innan skamms. Að lokum hitti Áslaug Ingólf Gunnarsson hjá Running Tide sem fór yfir starfsemina og uppbyggingu félagsins á Breið og á Grundartanga. Loks má geta þess að Kaja frumkvöðull með meiru hjá Kaju Organics bauð upp á sérhannaðar snittur fyrir ráðherra og sína einstöku haframjólk.",
  "innerBlocks": []
}
Ráðherra nýtti daginn vel í nýsköpunarsetrinu á Breið - Skessuhorn