Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti undir landsliðslágmarki í 100m skriðsundi. Ljósm. aðsend

Skagamenn stóðu sig vel á Extramóti SH

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Liðna helgi kepptu 15 sundmenn frá Akranesi á Extramóti SH í Hafnarfirði en það mót er eitt það sterkasta sem haldið er hér á landi að hausti. Þar nýta sterkustu sundmenn landsins mótið til þess að undirbúa sig fyrir Íslandsmeistaramótið í lok nóvember. Alls komu 15 verðlaun heim með Skagamönnum að móti loknu, tvö gull, sex silfur og sjö brons en það voru Einar Margeir Ágústsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Enrique Snær Llorens, Guðbjarni Sigþórsson og Kristján Magnússon sem syntu til verðlauna að þessu sinni. „Krakkarnir stóðu sig mjög vel og það er alltaf gaman að koma í Ásvallalaug til að keppa. Sundfólkið okkar er mjög vant þeirri laug þar sem við höfum fengið að æfa í lauginni hjá SH á laugardögum og hún er ein af okkar uppáhaldslaugum til æfinga og í keppni,“ segir Kjell Wormdal yfirþjálfari hjá ÍA.\n\nGuðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti undir landsliðslágmarki þegar hún synti 100 metra skriðsund á 58,18 en það skilaði henni öðru sætinu í fullorðinsflokki og var það besta sundið á mótinu. Þá voru slegin fimm Akranesmet en Einar Margeir Ágústsson sló þrjú af þeim metum þegar hann synti 200m skriðsund í fullorðinsflokki og 50m og 100m skriðsund í flokki pilta.\n\nEinnig var mikið um bætingar en Alex Benjamín Bjarnason, Víkingur Geirdal, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Einar Margeir Ágústsson, Iris Arna Ingvarsdóttir og Aldís Lilja Viðarsdóttir bættu sig í öllum sínum sundum um helgina. Viktoria Emilia Orlita náði svo sínu fyrsta ÍM lágmarki fyrir Íslandsmeistaramótið í 50m skriðsundi. „Sannarlega flott helgi hjá Skagamönnum,“ segir Kjell að lokum.\n\n[gallery columns=\"1\" size=\"full\" ids=\"57544\"]",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn stóðu sig vel á Extramóti SH - Skessuhorn