Eyþór Aron Wöhler skoraði sigurmark ÍA gegn FH. Ljósm. Lárus Árni Wöhler

Skagamenn fallnir eftir sigur á FH

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það varð ljóst í gær að Skagamenn eru fallnir úr Bestu deildinni í knattspyrnu og leika á næsta ári í Lengjudeildinni eftir að hafa unnið sigur á FH í Kaplakrika í Hafnarfirði. ÍA hefur síðustu fjögur ár leikið í efstu deild en þurfa nú að sætta sig við fall. Í viðtali eftir leik sagði Jón Þór Hauksson þjálfari Skagamanna að framtíðin væri björt, nú yrði mikil ábyrgð lögð á þessa stráka og gríðarleg vinna framundan. „Nú verður skoðuð saga félagsins, þetta er ákveðið mynstur sem er að endurtaka sig og þá er bara að byrja þessa vinnu.“\r\n\r\nEn þá að leiknum. Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn og fyrsta alvöru færi leiksins kom eftir rúman korters leik þegar FH-ingurinn Úlfur Ágúst Björnsson fékk dauðafæri í teignum en skot hans fór rétt framhjá. ÍA fékk skyndisókn á 40. mínútu þegar Gísli Laxdal Unnarsson fékk boltann í teignum og kláraði snyrtilega færið framhjá markmanni FH. Jöfnunarmark heimamanna kom síðan rétt fyrir hálfleik þegar Oliver Heiðarsson átti fyrirgjöf inn á teig þar sem Úlfur Ágúst lúrði og kom boltanum í markið, hálfleikstölur 1-1.\r\n\r\nÍ seinni hálfleik voru FH-ingar sem höfðu tögl og haldir fyrri hlutann en inn vildi boltinn alls ekki. Eftir það var leikurinn í jafnvægi og allt stefndi í jafntefli þar til í uppbótatíma. Þá fékk varamaðurinn Breki Þór Hermannsson boltann rétt utan teigs og átti hörkuskot að marki sem markvörður FH varði en boltinn barst beint fyrir fætur Eyþórs Arons Wöhler sem potaði boltanum í netið með síðustu snertingu leiksins. Fyrsti sigur Skagamanna í Kaplakrika í meira en 20 ár staðreynd en liðið vann þar síðast sigur árið 2001 þegar liðið fagnaði sama ár síðasta Íslandsmeistaratitli.\r\n\r\nÍA lauk tímabilinu í ellefta sæti deildarinnar með 25 stig eins og FH en með mun lakari markamun og féll því í Lengjudeildina. Liðið vann sex leiki, gerði sjö jafntefli og tapaði fjórtán leikjum og markatalan var 28-66. Markahæstur var Eyþór Aron Wöhler með níu mörk, Gísli Laxdal með fimm mörk og Kaj Leo Í Bartalstovu með þrjú mörk.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn fallnir eftir sigur á FH - Skessuhorn